Flóaskóli - S: 486-3460 - floaskoli@floaskoli.is
  • Fréttir
  • Um skólann
  • Skólinn
    • Eyðublöð
    • Fréttabréf
    • Matseðill
    • Nefndir og ráð
    • Sjálfsmat Flóaskóla
    • Skólaakstur
    • Skóladagatal
    • Skólaráð
    • Skýrsla fræðslunefndar
    • Starfsáætlun Flóaskóla
    • Starfsmenn 2012-2013
    • Stundatöflur
  • Námið
    • Heimanám
    • Einstaklingsnámskrár
    • Náms- og starfsráðgjöf
    • Skólanámskrá
    • Skólareglur og skólalykill
  • Nemendur
    • Nemendaverndarráð
    • 1. bekkur
    • 2. bekkur
    • 3.-4. bekkur
    • 5. bekkur
    • 6.-7. bekkur
    • 8. bekkur
    • 9. bekkur
    • 10. bekkur
    • Félagslíf
    • Nemendafélag
  • Foreldrar
    • Bekkjarfulltrúar
    • Foreldrafélag
    • Samstarf foreldra og skóla
  • Einelti - Olweus
  • Hagnýtt
    • H6 - heilsugæslan
    • Inflúensa
    • Tákn með tali
    • Örugg netnotkun
    • PDF reader
  • Myndir
  • Félagsmiðstöðin Zone

Ýmsar krækjur

Mentor

Fréttir af skólastarfinu

Velkomin á heimasíðu Flóaskóla

Picture
Flóaskóli stendur á Villingaholti í Flóahreppi, 801 Selfoss.  Flóaskóli var stofnaður haustið 2004 eftir sameiningu Gaulverjabæjarskóla, Villingaholtsskóla og Þingborgarskóla.

Flóaskóli þjónar nemendum í 1.-10. bekk og veturinn 2012-2013 eru nemendur rúmlega 90 talsins. Samkennsla er nokkur og áhersla lögð á að hver og einn einstaklingur fái að njóta sín á eigin forsendum. List- og verkgreinar og önnur skapandi vinna er stór hluti af skólastarfinu. Gott samstarf er við leikskólann Krakkaborg og Tónlistarskóla Árnesinga.

Haustið 2009 hóf 8. bekkur nám við skólann í fyrsta sinn. Veturinn 2011-2012 var skólinn í fyrsta skipti með alla bekki grunnskólans, frá 1. bekk og upp í 10. bekk.

Ný viðbygging við skólann var tekin í notkun haustið 2010 og er aðstaða öll hin glæsilegasta.  Fjöldi starfsmanna í skólanum er um 25 auk 6 skólabílstjóra.  Fjöldi bekkja er 8, þar af eru 2 bekkir í samkennslu.  

Skólinn opnar alla virka morgna klukkan 7:45 og kennsla hefst kl 8:10.  
Skólastjóri er Guðmundur Freyr Sveinsson og deildarstjóri/staðgengill skólastjóra er Hulda Kristjánsdóttir.  

Netfang skólans er:
floaskoli@floaskoli.is 
Símanúmer skólans er: 486-3460 
Heimasíða: www.floaskoli.is 
Kennitala skólans er: 600606-1310

Create a free website with Weebly