Flóaskóli - S: 486-3460 - floaskoli@floaskoli.is
  • Fréttir
  • Um skólann
  • Skólinn
    • Eyðublöð
    • Fréttabréf
    • Matseðill
    • Nefndir og ráð
    • Sjálfsmat Flóaskóla
    • Skólaakstur
    • Skóladagatal
    • Skólaráð
    • Skýrsla fræðslunefndar
    • Starfsáætlun Flóaskóla
    • Starfsmenn 2012-2013
    • Stundatöflur
  • Námið
    • Heimanám
    • Einstaklingsnámskrár
    • Náms- og starfsráðgjöf
    • Skólanámskrá
    • Skólareglur og skólalykill
  • Nemendur
    • Nemendaverndarráð
    • 1. bekkur
    • 2. bekkur
    • 3.-4. bekkur
    • 5. bekkur
    • 6.-7. bekkur
    • 8. bekkur
    • 9. bekkur
    • 10. bekkur
    • Félagslíf
    • Nemendafélag
  • Foreldrar
    • Bekkjarfulltrúar
    • Foreldrafélag
    • Samstarf foreldra og skóla
  • Einelti - Olweus
  • Hagnýtt
    • H6 - heilsugæslan
    • Inflúensa
    • Tákn með tali
    • Örugg netnotkun
    • PDF reader
  • Myndir
  • Félagsmiðstöðin Zone

Skólareglur Flóaskóla

1.      Ástundun og skólasókn
Nemendur og starfsmenn skólans skulu leggja sig fram um að stunda vinnu sína í skólanum af kostgæfni og stefna alltaf að því að gera sitt besta. Mæta skal stundvíslega í allar kennslustundir, vel undirbúinn og með öll gögn meðferðis.

2.     
Samskipti og skólabragur
Samskipti í skólanum eiga að byggjast á gagnkvæmri virðingu, kurteisi og tillitssemi.  Í Flóaskóla eiga nemendur og starfsfólk að búa við öryggi, góðar vinnuaðstæður, vinnufrið og jákvæð og uppbyggileg samskipti. Kennarar stýra vinnu nemenda í kennslustundum, nemendur fara að fyrirmælum þeirra og annars starfsfólks á skólatíma. Reglur um samskipti og skólabrag gilda í skólanum, á skólalóð, í mötuneyti, í íþróttahúsum og sundlaug og á öllum öðrum stöðum sem nemendur sækja á vegum skólans.

3.     
Umgengni
Áhersla er lögð á góða umgengni innan veggja skólans og á skólalóð. Sama gildir um alla þá staði sem nemendur sækja á vegum skólans. Ávallt skal leggja áherslu á að fara vel með námsgögn, húsnæði og að bera virðingu fyrir umhverfi sínu. 

4.      Verðmæti

Nemendur bera sjálfir ábyrgð á þeim verðmætum sem þeir kjósa að koma með í skólann.

5.      Farsímar og önnur tæki

Notkun síma, hljómtækja, leikjatölva og annars búnaðar sem truflar nám og kennslu, eða veldur öðrum óþægindum, er óheimil í kennslustundum nema með leyfi kennara. Öll notkun nemenda á farsímum á skólatíma er óheimil.

6.      Heilbrigðar lífsvenjur

Neysla gosdrykkja, sælgætis og tyggigúmmís er ekki leyfð í skólanum og á skólalóð nema annað sé tekið fram vegna sérstakra aðstæðna. Öll neysla tóbaks og annarra vímuefna er óleyfileg í skólanum og á skólalóð. Flóaskóli hvetur nemendur og starfsfólk til heilbrigðra lifnaðarhátta.

7.     
Leyfi og forföll
Leyfi nemenda allt að tveimur skóladögum veitir umsjónarkennari en lengra leyfi skulu forsjáraðilar nemenda sækja um skriflega til skólastjórnenda á þar til gerðu eyðublaði sem fæst á skrifstofu skólans og á heimasíðu. Forföll tilkynnist að morgni hvers skóladags á skrifstofu skólans.

Skólalykill Flóaskóla fyrir 6.-10. bekk

Skólalykill Flóaskóla er hluti af skólanámskrá skólans. Í lyklinum er ásættanleg hegðun skilgreind, farið er yfir jákvæð samskipti og einnig hvernig við leysum þau vandamál sem upp geta komið. Skólalykillinn er ætlaður öllum sem að skólanum koma, nemendum, foreldrum og starfsmönnum og er einskonar leiðarvísir sem inniheldur mikilvægar upplýsingar fyrir þá sem að skólastarfinu koma.

Mikilvægt er að nemendur kynni sér efni lykilsins vel, kennarar fari yfir efnið með nemendum og foreldrar ræði um efni skólalykilsins heima.

Skólalykill Flóaskóla - smellið HÉR

Create a free website with Weebly