Sumarfrí!
sett inn 10. júní 2013
Sumarfrí nemenda hófst að loknum skólaslitum þann 31. maí. Skólasetning skólaársins 2013-2014 verður í Þjórsárveri 22. ágúst. Nánar auglýst síðar.
Hafið það sem allra best í sumar!
Hafið það sem allra best í sumar!
Útskrift og skólaslit
sett inn 29. maí 2013
Fimmtudagskvöldið 30. maí kl. 20:30 fer fram útskrift 10. bekkinga. Athöfnin fer fram í Þjórsárveri.
Föstudaginn 31. maí kl. 14:00 verða skólaslit Flóaskóla í Þjórsárveri.
Að loknum skólaslitum verður pylsupartý og sýning á verkum nemenda í Flóaskóla. Sýningin stendur til. 15:15. Bendum á að sýningin verður opin í tengslum við fjölskyldu- og menningarhátíðina Fjör í Flóa kl. 13:00-14:00 þennan sama dag.
Bestu kveðjur úr Flóaskóla!

Nýr matseðill
sett inn 14. maí 2013
Nýr matseðill fyrir apríl-maí er kominn undir: skólinn - matseðill
Skóladagatal 2013-2014
sett inn 14. maí 2013
Fréttir!
sett inn 13. maí 2013
Nú er heldur betur farið að vora hjá okkur í Flóahreppi og nóg um að vera! Nú eru einungis 2 kennsluvikur eftir og 1 vika í úti- og grenndarnámi og skólaferðalögum. Skólaslit verða föstudaginn 31. maí.
Á síðustu vikum hafa verið haldin bekkjarkvöld í nokkrum bekkjum í skólanum, 10. bekkingar fóru í starfskynningar í hinum ýmsu fyrirtækjum, elsti árgangur Krakkaborgar kom í heimsókn í eina viku, unglingastigið heimsótti Björgunarmiðstöðina á Selfossi, foreldrar hafa komið í heimsókn í skólann á foreldrafundi svo fátt eitt sé nefnt.
Og ekki er minna framundan. Næstkomandi fimmtudag stendur nemendaráð skólans fyrir íþróttadegi fyrir unglingastig þar sem keppt verður í hinum ýsmu greinum og endar sú dagskrá á að skora á kennara skólans í fótbolta! Í hádeginu verður grillveisla fyrir unglingastigið. Nemendur í 3.-4. bekk ætla að halda Eurovision bekkjarpartý í vikunni og í næstu viku koma til okkar gestir frá Bláskógaskóla í Biskupstungum. Samhliða þessu öllu eru nemendur að leggja lokahönd á verk sín í skólanum og kennarar að klára námsmat.
Vikna 27. - 31. maí fara nemendur ýmist í skólaferðalög eða vettvangsferðir. 10. bekkur fer í útskriftarferð í Skagafjörðinn, 8.-9. bekkur heimsækir vini sína í Danmörku, 6.-7. bekkur fer í Skólabúðirnar að Reykjum í Hrútafirði og 1.-5. bekkur í fjöruferð og fleira.
Útskrift 10. bekkinga verður fimmtudagskvöldið 30. maí og skólaslit Flóaskóla föstudaginn 31. maí, hvort tveggja í Þjórsárveri (nánar auglýst síðar).
Eins og sjá má er alltaf líf og fjör í Flóaskóla!

Vorskólavika leikskólabarna 2.-8. maí
sett inn 2. maí 2013
Vorskólavika leikskólabarna hefst í dag, fimmtudaginn 2. maí. Vikan er lokaskref í aðlögun elsta árgangs leikskólans vegna skólagöngu þeirra í Flóaskóla á komandi hausti. Í vetur hafa börnin verið að koma reglulega í heimóknir til okkar. Í vorskólavikunni fá börnin að kynnast sem flestum námsgreinum og kennurum í skólanum á þessari viku. Þau fá einnig að prufa að fara með skólabílunum. Það verður gaman að fylgjast með komandi nemendum okkar þessa daga!
Í dag, fimmtudaginn 4. apríl, lýkur skólastarfi kl. 12:35 vegna skólaheimsóknar starfsmanna Flóaskóla í
Laugalandsskóla í Holtum. Þar munu starfsmenn Flóaskóla fá kynningu á skólastarfinu og funda svo í kjölfarið með þeim aðilum sem sinna sambærilegum störfum í Laugalandsskóla. Markmiðið er að gefa báðum starfsmannahópunum tækifæri til að skiptast á góðum hugmyndum í
skólastarfi.

sett inn 4. apríl 2013
Nýr matseðill fyrir apríl-maí er kominn undir: skólinn - matseðill
Árshátíð í 1.-7. bekk
sett inn 13. mars 2013
Föstudaginn 15. mars halda nemendur í 1.-7. bekk árshátíð í Þjórsárveri. Hátíðin hefst klukkan 14:00.
Nemendur hafa æft hin ýmsu atriði en þema árshátíðarinnar í ár er Laddi.
Nemendur mæta í skólann kl. 8:10 líkt og venjulega og munu svo fara heim með foreldrum að lokinni sýningu.
6.-7. bekkur mun sjá um SJOPPU fyrir sýningu og í hléi og rennur ágóði í ferðasjóð þeirra.
Vonumst til að sjá sem flesta!

Úrslit úr Skólahreysti
sett inn 13. mars 2013
Í dag fór fram lokakeppni fyrir Suðurland í Skólahreysti. Örvar Rafn hefur undirbúið keppendur Flóaskóla undanfarið og var mikill metnaður lagður í verkefnið hjá kennara og keppendum. Keppendur Flóaskóla voru eftirfarandi:
Upphýfingar og dýfur: Ægir Atlason, 9. bekk
Armbeygjur og hreystigreip: Helga Margrét Höskuldsdóttir, 10. bekk
Hraðaþraut: Daníel Aron Davíðsson, 10. b. og Sunna Skeggjadóttir, 8. b.
Varamenn voru Eyrún Gautadóttir í 8. bekk og Jóann Páll Smárason í 10. bekk.
Flóaskóli endaði í 10. sæti af 12 skólum. Gaman er að segja frá því að Ægir Atlason sigraði dýfurnar og varð þriðji í upphýfingum og var hann í gifsi á fætinum á meðan!
Flottur árangur hjá krökkunum!
Eftir keppnina var nemendum í 8.-10. bekk boðið í pizzaveislu og keilu af Æskulýðsnefnd Flóahrepps en Skólahreysti var unnið í samstarfi við nefndina í ár. Flott samstarf og þökkum við kærlega fyrir okkur.

Úrslit í Stóru upplestrarkeppninni í uppsveitum Árnessýslu og Flóa
sett inn 12. mars 2013
Stóra upplestrarkeppnin í uppsveitum Árnessýslu og Flóa fór fram í Aratungu mánudaginn 11. mars og hófst kl. 14. Gestgjafaskóli var Bláskógaskóli og komu keppendur frá Bláskógaskóla, Flóaskóla, Flúðaskóla, Kerhólsskóla og Þjórsárskóla. Dagskráin var hefðbundin og skiptist á upplestur og tónlistaratriði. Ávarp til gesta og keppenda flutti Valgerður Sverrisdóttir fræðslunefndarmaður í Bláskógabyggð og bókasafnsfræðingur. Úrslit keppninnar voru eftirfarandi:
Nemendur Flóaskóla stóðu sig frábærlega og höfnuðu í 1. og 3. sæti. Glæsilegur árangur!
1. sæti: Agnes Björg Birgisdóttir, Flóaskóla.
2. sæti: Halldór Fjalar Helgason, Flúðaskóla.
3. sæti: Alexander Ó. B. Kristjánsson, Flóaskóla.

Skólahald í Flóaskóla miðvikudaginn 6. mars!
sett inn 6. mars 2013
UPPFÆRT kl. 9:00.
Sökum hvassviðris hefur verið ákveðið að fella niður skólahald í Flóaskóla í dag.
Skólahald í Flóaskóla frestast í dag, miðvikudaginn 6. mars, sökum veðurs. Athugað verður hvort hægt verði að hefja skólaakstur kl. 9:00

Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar í Flóaskóla
sett inn 1. mars
Undankeppni Stóru upplestrar-keppninnar var haldin í Flóaskóla í dag. Þar komu fram 7 nemendur úr 7. bekk og fluttu textabút út skáldsögu í fyrri umferð og ljóð að eigin vali í seinni umferð.
Allir keppendur stóðu sig með glæsibrag en dómnefndin valdi Agnesi Björgu Birgisdóttur og Alexander Ómar Kristjánsson sem fulltrúa skólans í lokakeppnina sem haldin verður 11. mars í Reykholti. Bríet Auður Baldursdóttir var valin sem varamaður.
Dómnefndina skipuðu: Margrét Sigurðardóttir sveitarstjóri, Valdimar Guðjónsson fulltrúi úr skólaráði og Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson leiklistarkennari.

Grunnskólamót HSK í glímu
sett inn 1. mars 2013
Flóaskóli sendi fjóra keppendur á Grunnskólamót HSK sem fór fram á Hvolsvelli miðvikudaginn 6. febrúar. Það má með sanni segja að þau hafi staðið sig frábærlega en árangur þeirra varð eftirfarandi:
9. bekkur stúlkna 3 keppendur
1. Hanna Kristín Ólafsdóttir 2 v. Grunnskólameistari HSK
9. bekkur stráka 6 keppendur
1. Þorgils Kári Sigurðsson 4,5 v. Grunnskólameistari HSK
3. Jón Gunnþór Þorsteinsson 3,5+0
10. bekkur stúlkna 6 keppendur
1. Guðrún Inga Helgadóttir 5 v. Grunnskólameistari HSK

Bingó, bingó!
sett inn 22. febrúar
Fimmtudaginn 28. febrúar, kl. 20:30, ætlar 10.bekkur að halda bingó í Þjórsárveri.
Ágóðinn mun renna í ferðasjóð 10. bekkjar.
Sjoppa á staðnum.
Hlökkum til að sjá ykkur
Kveðja
10. bekkur
Ágóðinn mun renna í ferðasjóð 10. bekkjar.
Sjoppa á staðnum.
Hlökkum til að sjá ykkur
Kveðja
10. bekkur
Lýsing leiksvæðis við Flóaskóla
sett inn 21. febrúar 2013
Sett hefur verið upp lýsing við sparkvöll og leiksvæði Flóaskóla. Mikið myrkur hefur verið á leiksvæði skólabarnanna í mesta skammdeginu og lýsingin gjörbreytir aðstæðum fyrir bæði nemendur og starfsmenn.
Nýr matseðill!
sett inn 21. febrúar 2013
Nýr matseðill fyrir febrúar - mars er kominn undir: skólinn - matseðill
Skólahreysti
sett inn 11. febrúar 2013
Æskulýðsnefnd Flóahrepps og Félagsmiðstöðin Zone hafa tekið að sér, í samvinnu Flóaskóla, að halda utan um Skólahreysti 2013.
Undankeppni Flóaskóla fór fram miðvikudaginn 6. febrúar í Þjórsárveri og á gervigrasvellinum við Flóaskóla. Eyrún Gautadóttir, Sunna Skeggjadóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir komust áfram í stúlknaflokki og í drengjaflokki komust þeir Daníel Aron Davíðsson, Jóann Páll Smárason og Ægir Atlason áfram.
Keppni fyrir Suðurland verður haldin í Smáranum í Kópavogi 13. mars kl. 13:00 og munum við fjölmenna á keppnina og styðja við bakið á okkar fólki. Æskulýðsnefnd Flóahrepps hefur ákveðið að bjóða öllum nemendum á unglingastigi út og borða og í keilu að keppni lokinni og mun Flóaskóli standa straum af rútukostnaði.
Keppendur eru þegar farnir að undirbúa sig undir leiðsögn Örvars Rafns og verður gaman að fylgjast með þeim á næstunni!

Verðlaunahafi í smásagnakeppni
sett inn 5. febrúar 2013
Nú fyrir áramót tóku nemendur í Flóaskóla þátt í smásagnasamkeppni á vegum Félags enskukennara á Íslandi (FEKÍ). Keppt var í þremur flokkum, 9.-10. bekk, 7.-8. bekk og 6. bekk og yngri. Allir nemendur unglingastigs sömdu sögur sem svo var valið úr til að senda í keppnina. Sendar voru inn þrjár sögur í hverjum flokki og kepptu þær til verðlauna.
Einn nemandi Flóaskóla, Sigurður Andri í 9. bekk, vann til verðlauna, en sagan hans lenti í 2. sæti í flokki 9.-10. bekkjar. Hann á von á glaðningi frá FEKÍ á næstunni.
Einn nemandi Flóaskóla, Sigurður Andri í 9. bekk, vann til verðlauna, en sagan hans lenti í 2. sæti í flokki 9.-10. bekkjar. Hann á von á glaðningi frá FEKÍ á næstunni.
Starfsdagur og námsmatsviðtöl
sett inn 29. janúar 2013
Mánudaginn 4. febrúar er starfsdagur í Flóaskóla. Þriðjudaginn 5. febrúar fara fram námsmatsviðtöl en þá fá nemendur afhentan vitnisburð þegar þeir mæta ásamt foreldrum/forráðamönnum í viðtal hjá umsjónarkennara.
Myndataka fyrir nemendur miðvikudaginn 23. janúar
sett inn 21. janúar
Miðvikudaginn 23. janúar kemur Bjarni frá Mynd ljósmyndastofu og tekur ljósmyndir af nemendum skólans. Bæði verða teknar hópmyndir af bekkjum og einstaklingsmyndir af öllum nemendum skólans.
Þegar myndatöku og vinnslu á myndunum er lokið fara myndirnar inn á vef ljósmyndastofunnar, með aðgangslykli skólans. Þar geta foreldrar skoðað, valið og pantað myndir. Hverjum og einum er frjálst að kaupa eftir hans/hennar hentugleik. Engin greiðsla fer fram áður og engin innheimta á sér stað í skólanum, eingöngu um leið og pantað er á vefnum. Nánari upplýsingar voru sendar til foreldra í tölvupósti 16. janúar s.l.

UPPFÆRT: Skólabílar sækja á fyrstu bæi kl. 9:30
sett inn 18. janúar 2013
Skólaakstur hefst kl. 9:30.
sett inn kl. 7:30:
Sökum veðurs hefst skólahald ekki kl. 8:10 í dag. Athugað verður kl. 9:30 hvort hægt verði að hefja skólaakstur og upplýsingar sendar út í kjölfarið.
sett inn kl. 7:30:
Sökum veðurs hefst skólahald ekki kl. 8:10 í dag. Athugað verður kl. 9:30 hvort hægt verði að hefja skólaakstur og upplýsingar sendar út í kjölfarið.
Kennsla fellur niður fimmtudaginn 17. janúar
sett inn 11. janúar
Fimmtudaginn 17. janúar fellur niður kennsla í Flóaskóla vegna þátttöku starfsfólks í mótun skóla- og æskulýðsstefnu Flóahrepps.
Gjafir frá Kvenfélagi Gaulverjabæjarhrepps
sett inn 10. janúar 2013
Rétt fyrir jólaleyfi tókum við í Flóaskóla á móti höfðinglegri gjöf frá Kvenfélagi Gaulverjarbæjarhrepps. Elín Höskuldsdóttir og Margrét Jónsdóttir færðu skólanum, fyrir hönd félagsins, eitt stykki Ipad ásamt útgáfuverkinu Íslensk listasaga sem gefin er út í fimm bindum. Bækurnar eru samtals 1400 blaðsíður, þar sem fjallað er um rúmlega 400 listamenn og birtar yfir 1000 ljósmyndir af listaverkum.
Bæði bækurnar og Ipadinn munu nýtast skólanum afar vel í kennslu og færum við Kvenfélagi Gaulverjabæjarhrepps okkar bestu þakkir fyrir stuðninginn.
Meðfylgjandi mynd var tekin við afhendingu gjafanna: Guðmundur Freyr skólastjóri, Elín og Margrét frá Kvenfélagi Gaulverjabæjarhrepps, Sigríður Oddný myndmenntarkennari og Hulda deildarstjóri.

sett inn 8. janúar 2013
HÉR má nálgast matseðil fyrir janúar-febrúar
Kennsla hefst föstudaginn 4. janúar
sett inn 3. janúar 2013
Kennsla hefst aftur eftir jólaleyfi föstudaginn 4. janúar.
Minnum á að þann dag eru íþróttir eða sund hjá flestum bekkjum og því mikilvægt að koma með réttan búnað með sér fyrsta daginn.
Hlökkum til að hefja nýtt ár af krafti.
Bestu kveðjur úr Flóaskóla!
Minnum á að þann dag eru íþróttir eða sund hjá flestum bekkjum og því mikilvægt að koma með réttan búnað með sér fyrsta daginn.
Hlökkum til að hefja nýtt ár af krafti.
Bestu kveðjur úr Flóaskóla!
Jólakveðja
sett inn 20. desember 2012
Starfsfólk Flóaskóla sendir bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári.
Þökkum gott samstarf á árinu sem er að líða.
Þökkum gott samstarf á árinu sem er að líða.
"Kokkakeppni" Flóaskóla
sett inn 20. desember 2012
Þann 7. desember síðastliðinn var „kokkakeppni“ Flóaskóla haldin í fyrsta skipti. Það voru nemendur úr 9. og 10. bekk skólans í heimilisfræðivali sem tóku þátt í keppninni undir handleiðslu Sigrúnar Helgadóttur heimilisfræðikennara. Hópnum var skipt í fjögur lið og átti hvert lið að framreiða einn aðalrétt og einn eftirrétt. Dómnefndina skipaði starfsfólks skólans þau, Guðmundur Freyr Sveinsson skólastjóri, Sigrún Árnadóttir umsjónarkennari 9. og 10. bekkjar, Örvar Rafn Hlíðdal, forstöðumaður félagsmiðstövarinnar Zone og Eydís Lilja Eiríksdóttir matráður. Dómnefnd byggði val sitt á eftirfarandi þáttum bragði, framsetningu og frumleika. Það voru þeir Sigurður Andri Jóhannesson og Hákon Öder Einarsson sem báru sigur úr býtum. Þeir félagar báru fram ostafyllta og beikonvafða kjúklingabringu með salsasalati og mexíkóostasósu í aðalrétt og súkkulaðiköku með karamellukremi í eftirrétt. Hér má sjá myndir frá keppninni.
Jólaskemmtun 1.-7. bekkjar
sett inn 12. desember 2012
Jólaskemmtun nemenda í 1.-7. bekk verður í Þjórsárveri föstudaginn 14. desember kl. 13:00.
Sjá meira...
Sjá meira...
Skólablað 7. bekkjar
sett inn 12. desember 2012
Undanfarnar vikur hafa nemendur í 7. bekk unnið að útgáfu skólablaðs. Blaðið mun innihalda hinn ýmsa fróðleik og skemmtun. Nemendur verða með blaðið til sölu á jólaskemmtun 1.-7. bekkjar föstudaginn 14. desember á 500 kr. Við hvetjum sem flesta til að kaupa eintak!
Vinir í Danmörku
sett inn 10. desember 2012
Á miðjum vetri síðasta skólaárs hafði dönsk kona, Heidi Brandt, samband við mig og óskaði eftir vinasambandi við nemendur mína í Flóaskóla. Aldur hennar nemenda passaði við aldur minna nemenda í núverandi 8. og 9. bekk. Þessir nemendur hafa því sent bréf á milli með upplýsingum um sjálfa sig, fjölskyldu, búsetu og áhugamál og jafnframt hafa þeir sent mínum nemendum samskonar upplýsingar.
Strax eftir páska eigum við von á þessum 20 unglinga hópi í heimsókn í Flóahrepp og munum við sýna þeim nokkra áhugaverða staði í okkar næsta nágrenni. Þeir munu gista í Vatnsholti, hjá nemendum og að lokum í Þjórsárveri.
Í lok þessa skólaárs, þann 25. maí, munum við fljúga út til þeirra og eyða nokkrum dögum með þeim. Við erum strax farin að hlakka til.
Eins og er þá erum við að útbúa jólagjafir sem sendar verða af stað á allra næstu dögum. Við útbjuggum bækling með sögu Grýlu og Leppalúða og gömlu íslensku jólasveinanna. Að auki ætla krakkarnir að senda þeim smá keim af íslensku sælgæti.
Heidi Brandt hefur útbúið bloggsíðu með upplýsingum og myndum af því efni sem nemendur hafa sent þeirra á milli. Endilega kíkið á það. www.kildeskolensislands.blogspot.dk
Kveðja,
Anna Þórný Sigfúsdóttir
Dönskukennari

Jóladagskrá Flóaskóla
sett inn 10. desember 2012
Nú er jóladagskrá Flóaskóla komin á fullt skrið. Nemendur á elsta stigi fara í jólahringekju í vikunni þar sem bakað verður laufabrauð, piparkökuhús og ýmislegt fleira. Nemendur í 1.-7. bekk eru í óðaönn að undirbúa jólaskemmtun sína sem haldin verður í Þjórsárveri föstudaginn 14. desember kl. 13:00. Þeir nemendur fara svo í jólahringekju í næstu viku.
Jólaskemmtun elsta stigs verður miðvikudagskvöldið 19. desember kl. 20:00 í Þjórsárveri.
Fimmtudaginn 20. desember verður haldið jólaball fyrir alla nemendur og stofujól með umsjónarkennurum. Nemendur klára daginn svo með því að borða allir saman hátíðarmat í hádeginu. Heimkeyrsla verður kl. 12:35 þann dag.

sett inn 21. nóvember 2012
Aðalfundur foreldrafélags Flóaskóla
sett inn 21. nóvember 2012
Aðalfundur foreldrafélagins í Flóaskóla verður haldinn þriðjudaginn 27. nóvember kl. 17:00.
Dagskrá:
1. Ársskýrsla
2. Reikningar
3. Kosning foreldrafulltrúa í skólaráð
4. Kosning í stjórn foreldrafélagsins
5. Önnur mál
Mikilvægt er að hafa öflugt og gott foreldrafélag við skólann og því óskum við eftir framboðum til formanns þar sem Sandra Dís Sigurðardóttir formaður gefur ekki kost á sér áfram. Aðrir í stjórninni eru Ragnar Sigurjónsson sem er ritari og Viðar Ófeigsson sem er gjaldkeri.
Gott er að vita fyrirfram hversu margir koma á fundinn og því er óskað eftir því að foreldrar sendi póst á gudmundur@floaskoli.is ef þeir munu mæta á fundinn.

Kynjafræði á unglingastigi
sett inn 21. nóvember 2012
Æskulýðsnefnd býður nemendum í 8.-10. bekk og foreldrum þeirra á námskeið hjá Hönnu Björgu Vilhjálmsdóttur félagsfræðikennara í Borgarholtsskóla og kynjafræðingi. Námskeiðið fer fram tvö kvöld og var fyrra kvöldið síðastliðinn mánudag og seinna kvöldið í kvöld, miðvikudagskvöldið 21. nóvember í Flóaskóla. Efni fræðslunnar er eftirfarandi:
Stráka- og stelpumenning. Erum við föst í bleikum og bláum boxum? Staðalmyndir og áhrif auglýsinga á sjálfsmynd okkar, viðhorf og væntingar.
Klám og klámvæðing. Hver er veruleikinn? Hvað er í kláminu? Hvaða áhrif hefur klámið á okkur - bæði stelpur og stráka. Hvað er þessi klámvæðing? Hvaða áhrif hefur hún á okkur?
Nemendur mæta frá kl. 19-21 og foreldrar kl. 21-22. Félagsmiðstöðin er opin fyrir nemendur á meðan fræðslan fyrir foreldra fer fram.

Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember
sett inn 7. nóvember 2012
Næstkomandi föstudag verður degi íslenskrar tungu fagnað um land allt í sautjánda sinn. Í Flóaskóla munu allir nemendur skólans taka þátt og hafa íslenskuna í öndvegi.
Nemendur koma saman í Þjórsárveri á eftirtöldum tímum:
6.-10 .bekkur kl. 10:30-11:10
1.-5. bekkur kl. 12:35-13:15
Foreldrar eru boðnir velkomnir!
Nemendur koma saman í Þjórsárveri á eftirtöldum tímum:
6.-10 .bekkur kl. 10:30-11:10
1.-5. bekkur kl. 12:35-13:15
Foreldrar eru boðnir velkomnir!
Dagur gegn einelti 8. nóvember!
sett inn 7. nóvember 2012
8. nóvember ár hvert er tileinkaður baráttunni gegn einelti. Skólar, samtök og vinnustaðir á landsvísu leggja sitt af mörkum til að einelti fái ekki þrifst í samfélaginu okkar.
Í Flóaskóla ætlum við að gera þessu málefni hátt undir höfði með því að vinna verkefni sem tengist einelti, jákvæðum skamskiptum, jákvæðum skólabrag og starfsanda.
Hægt er að skrifa undir þjóðarsáttmála gegn einelti sem er aðgengilegur á heimasíðunni www.gegneinelti.is. Með undirritun skuldbindur fólk sig til að vinna gegn einelti og markmiðið er að fá sem allra flesta til að skrifa undir sáttmálann. Við hvetjum sem flesta til að skrifa undir eftirfarandi sáttmála:
Þjóðarsáttmáli gegn einelti
„Við undirrituð skuldbindum okkur til þess að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar. Við munum standa vörð um rétt fólks til þess að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. Við munum sérstaklega gæta réttar barna og ungmenna sem og einnig allra hópa sem ekki eiga sér málsvara eða sterka rödd.Við munum öll hvert á okkar sviði, skuldbinda okkur til þess að hafa áhrif til góðs á nánasta umhverfi okkar. Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til þess að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er.”

Hrekkjavaka í Flóaskóla!
sett inn 1. nóvember 2012
Nemendur á öllum stigum Flóaskóla héldu hrekkjavökupartý í skólanum 31. október. Þar mátti sjá ýmsar verur og fígúrur. Myndirnar tala sínu máli!
(ath. fleiri myndir væntanlegar)
(ath. fleiri myndir væntanlegar)
Vikan 29. október - 2. nóvember
sett inn 24. október 2012
Miðvikudaginn 31. október lýkur kennslu fyrr vegna málþings fyrir kennara um grunnþætti í nýjum aðalnámskrám. Skólabílar keyra því alla nemendur heim kl. 12:35 þennan.
Fimmtudaginn 1. nóvember er starfsdagur kennara og nemendur mæta því ekki í skólann.
Föstudaginn 2. nóvember eru námsmatsviðtöl en þá mæta nemendur ásamt foreldrum/forráðamönnum í viðtal hjá sínum umsjónarkennara. Hvert viðtal er áætlað 20 mínútur.
Námsmatsviðtölin fara fram með nokkuð breyttu sniði frá fyrri árum en við ætlum að notast við svokallað leiðsagnarmat í Mentor. Leiðsagnarmat gefur aukna möguleika á samstarfi nemenda, foreldra og skóla við markmiðssetningu og mat á stöðu og líðan nemenda. Markmiðið er að gera námsmatsviðtölin markvissari og gagnkvæmari.
Nemendur geta byrjað að meta sig FÖSTUDAGINN 26. OKTÓBER og verður matið opið til og með miðvikudeginum 31. október. Kennarar skrá sitt mat á sama tíma. Á námsmatsdegi 2. nóvember gefst kostur á að bera saman matið.
HÉR eru nánari upplýsingar um framkvæmd matsins.
Umsjónarkennarar munu senda póst á foreldra vegna tímasetninga fyrir viðtölin.

Nemandi í Flóaskóla á EM í hópfimleikum!
|
Ólympíuleikar og ólympíumeistari í 3.-4. bekk
sett inn 15. október
Síðasta vika var skemmtileg og lærdómsrík hjá nemendum í 3.-4. bekk. Þau héldu Ólympíuleika Flóaskóla og buðu vinum sínum í 1. og 2. bekk. Nemendur höfðu undirbúið leikana vel og hófu þá á að ganga fylktu liði með þjóðfána inn á leikvanginn þar sem við tók opnunarhátóð og setning. Keppnisgreinar sem nemendur höfðu undirbúið voru: þambkeppni, lyftarahlaup, skutlukast, húlla, púslukeppni, mottuhlaup, NERF skotfimi og spilakast. Ólympíumeistara mátti finna úr öllum bekkjum og af báðum kynjum og fengu þeir krans og verðlaunapening rétt eins og á alvöru Ólympíuleikum. Að lokinni verðlaunaafhendingu var slökkt á ólympíueldinum og nemendur fóru út í frímínútur.
Miðvikudaginn 10. október komu svo Jón Margeir, Ólympíu- og heimsmeistari í 200 m. skriðsundi fatlaðra, og pabbi hans í heimsókn í 3.-7. bekk. Horft var á úrslitasundið og verðlaunaafhendinguna með feðgunum og þeir sögðu frá og sýndu síðan gullverðlaunin. Eftir það gátu nemendur spurt Jón Margeir spjörunum úr, sem þeir nýttu sér óspart. Í lok heimsóknarinnar gaf hann nemendum plakat og áritaði það.
Meðfylgjandi eru myndir frá þessum skemmtilegu viðburðum.

sett inn 8. október 2012
Heimsókn í FSu
sett inn 2 .október 2012
Miðvikudaginn 3. október fara nemendur í 8.-10. bekk í FSu og taka þátt í iðn- og starfsnámsdögum undir handleiðslu Guðrúnar Birnu námsráðgjafa og Sigrúnar umsjónarkennara kl. 11:30.
Kynningin er öllum opin, sjá nánar: http://www.fsu.is/j/images/stories/myndir/frettirforsida/2012-13/idn_ogstarfsnamsd12.jpg
Kynningin er öllum opin, sjá nánar: http://www.fsu.is/j/images/stories/myndir/frettirforsida/2012-13/idn_ogstarfsnamsd12.jpg
Danssýning!
sett inn 2. október 2012
Miðvikudaginn 3. október kl. 13:00-13:55 verður danssýning fyrir foreldra nemenda í 1.-7. bekk í Þjórsárveri. Á danssýningunni sýna krakkarnir okkur hvað þau hafa lært á dansnámskeiði sem hefur verið í gangi síðustu daga.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Ungmenna- og tómstundabúðir fyrir 9. bekk
sett inn 1. október 2012
Vikuna 8.-12. október fara nemendur í 9. bekk í ungmenna og tímstundabúðir að Laugum í Sælingsdal. Lagt verður af stað frá Flóaskóla rúmlega 8 á mánudagsmorgun. Sigrún Árnadóttir, umsjónarkennari í 9. bekk, mun fara með í ferðina.
Markmiðið með dvölinni á Laugum er að styrkja félagsfærni unglinga, efla vitund þeirra fyrir umhverfi sínu og samfélagi ásamt mikilvægi þess að hafa heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi.
Markmiðið með dvölinni á Laugum er að styrkja félagsfærni unglinga, efla vitund þeirra fyrir umhverfi sínu og samfélagi ásamt mikilvægi þess að hafa heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi.
Danskennsla í Flóaskóla
sett inn 21. september 2012
Mánudaginn 24. september byrjar DANSNÁMSKEIÐ í Flóaskóla á vegum Dansskóla Jóns Péturs og Köru. Nemendum í 1.-7. bekk er skylt að taka þátt en nemendur í 8.-10. bekk hafa val um hvort þeir taki þátt í dansnámskeiði eða ekki.
Nemendum skólans er skipt upp í 4 hópa sem fara 5 sinnum í 40 mínútna danstíma á tímabilinu 24. september - 3. október. Mögulega verður svo haldin danssýning síðasta daginn en það verður auglýst frekar síðar.

Skólakynning 26.9.
sett inn 18. september 2012
Miðvikudaginn 26. september kl. 8:10-9:30 verður skólakynning fyrir foreldra í Flóaskóla.
Á skólakynningu gefst foreldrum kostur á að kynnast starfinu betur, skoða námsefni, verkefni og spjalla við kennara og aðra starfsmenn skólans.
Vonumst til að sjá sem flesta!
Á skólakynningu gefst foreldrum kostur á að kynnast starfinu betur, skoða námsefni, verkefni og spjalla við kennara og aðra starfsmenn skólans.
Vonumst til að sjá sem flesta!
Samræmd próf
sett inn 18. september 2012
Vikuna 17.-21. september fara fram samræmd próf í 4. bekk, 7. bekk og 10. bekk á landsvísu.
10. bekkingar byrjuðu á íslenskuprófi, taka ensku í dag og stærðfræði á miðvikudag. 4. og 7. bekkur byrja á fimmtudaginn á því að taka íslenskupróf og taka svo stærðfræðipróf á föstudaginn.
10. bekkingar byrjuðu á íslenskuprófi, taka ensku í dag og stærðfræði á miðvikudag. 4. og 7. bekkur byrja á fimmtudaginn á því að taka íslenskupróf og taka svo stærðfræðipróf á föstudaginn.
Dagur læsis 8. september
sett inn 7. september 2012
Laugardaginn 8. september er dagur læsis. Nemendur og starfsfólk Flóaskóla héldu upp á það í dag með því hafa "allir lesa" stund. Þá settust allir niður, kennarar og nemendur, í 20 mínútur kl. 12:35-12:55 með bók í hönd, lásu saman og áttu góða og notalega stund saman.
Samningur við nemendur í 10. bekk
sett inn 6. september 2012
Flóahreppur hefur gert samning við nemendur 10. bekkjar um aðstoð við gæslu í frímínútum og í mötuneyti skólans. Nemendur annast gæsluna með kennurum og öðru starfsfólki skólans. Skólastjórnendur og umsjónarkennari skipuleggja starfið fyrir nemendur og hafa yfirumsjón með því.
Nemendur fá greitt fast verð frá Flóahreppi fyrir vinnuna sem rennur óskipt í ferðasjóð þeirra.
Þeir nemendur sem annast gæsluna hverju sinni hafa kuldagalla til afnota og endurskinsvesti sem TM gaf skólanum.
Á myndinni eru nemendur 10. bekkjar ásamt Sigrúnu Árnadóttur umsjónarkennara og Guðmundi Frey Sveinssyni skólastjóra.

Gjaldskrár
sett inn 28. ágúst 2012
Mötuneytisgjald (morgunhressing og hádegismatur): 295 kr pr. dag.
Skólavistun (vistun og síðdegishressing): 492 kr pr. dag.
Gjald fyrir mötuneyti og skólavistun er innheimt í kringum 20. hvers mánaðar með greiðsluseðlum.
Gjald fyrir námsgögn nemenda í 1.-4. bekk: 3000 kr fyrir veturinn og hafa foreldrar fengið upplýsingar vegna millifærslu.
Skólavistun
sett inn 27. ágúst 2012
Skólavistun verður opin á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 14:00-16:30 og er fyrsti dagurinn á morgun, þriðjudaginn 28. ágúst. Möguleiki er á að þriðji dagurinn bætist við síðar og verður það þá auglýst á meðal foreldra.
Starfsmenn skólavistunar eru þau Valgerður Gestsdóttir og Örvar Rafn Hlíðdal.
Starfsmenn skólavistunar eru þau Valgerður Gestsdóttir og Örvar Rafn Hlíðdal.
Innkaupalistar fyrir 5.-10. bekk
|
Stundatöflur
|
| 14. maí - 1. júní | |
| File Size: | 44 kb |
| File Type: | |
| 13. febrúar - 23. mars | |
| File Size: | 86 kb |
| File Type: | |
| 3. janúar - 10. febrúar | |
| File Size: | 40 kb |
| File Type: | |
Sækja PDF reader
Laus störf í Flóaskóla
sett inn 9. ágúst 2012
Laust starf stuðningsfulltrúa í Flóaskóla Flóaskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í 70% starf til að sinna aðstoð við nemendur í bekkjarkennslu, gæslu í frímínútum, hádegismat og rútuferðum auk baðvörslu drengja eftir íþróttir.
Við leitum að duglegum karlmanni sem á auðvelt með að umgangast börn og unglinga. Í störfum sínum þarf viðkomandi að geta sýnt frumkvæði, sveigjanleika og lipurð í samskiptum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi FOSS við launanefnd sveitarfélaga. Ráðning í starfið er tímabundin frá 22. ágúst 2012 til 31. maí 2013.
Nánari upplýsingar gefur Guðmundur Freyr Sveinsson skólastjóri, sími 486-3460, netfang gudmundur@floaskoli.is , og hann tekur einnig við umsóknum um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst 2012. Upplýsingar um Flóaskóla má finna á heimasíðu skólans http://floaskoli.weebly.com/
Stundakennari í norsku og sænsku í Flóaskóla
Flóaskóli auglýsir eftir stundakennara í norsku og sænsku á unglingastigi skólaárið 2012-2013. Kenndar eru þrjár kennslustundir í hvoru fagi. Í störfum sínum þarf viðkomandi kennari að geta sýnt frumkvæði, sveigjanleika og lipurð í samskiptum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi KÍ við launanefnd sveitarfélaga.Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst 2012. Nánari upplýsingar gefur Guðmundur Freyr Sveinsson skólastóri í síma 486-3460, netfang gudmundur@floaskoli.is , og hann tekur einnig við umsóknum um starfið.

Skólasetning 23. ágúst
Flóaskóli verður settur fimmtudaginn 23. ágúst og kennsla hefst samkvæmt stundaskrám föstudaginn 24. ágúst kl. 8:10. Nánar auglýst síðar.
HÉR má nálgast skóladagatal fyrir skólaárið 2012-2012.
HÉR má nálgast skóladagatal fyrir skólaárið 2012-2012.
Skólaslit Flóaskóla
Sett inn 29. maí 2012
Skólaárinu 2011-2012 verður slitið föstudaginn 1. júní kl. 14:00 í Þjórsárveri. Nemendur mæta með foreldrum/forráðamönnum og/eða öðrum gestum og taka við vitnisburði sínum. Í ár útskrifum við 10. bekk í fyrsta skipti úr skólanum og verður athöfnin því með örlítið öðru sniði en undanfarin ár. Að skólaslitum loknum er sýning á verkum nemenda á neðri hæð í nýbyggingu.
Vordagar!
Sett inn 29. maí 2012
Dagana 29.-30. maí er úti- og grenndarnám í skólanum. Nemendur munu fara í hinar ýmsu vettvangsferðir, fegra umhverfið og njóta útiverunnar. Nemendur í 1.-5. bekk fara í fjöruferð, 8. bekkingar í dagsferð á skátasvæðið á Úlfljótsvatni, 6.-7. bekkur fer í tveggja nátta ferð á Snæffellsnes, 9. bekkur gróðursetur plöntur frá Yrkjusjóði og 10. bekkur fer í tveggja nátta útskriftarferð í Skagafjörð. 30. maí er íþróttadagur við skólann sem endar á grillveislu. Veðurspáin lofar góðu og mun það án efa hjálpa til við að gera síðustu daga skólaársins ógleymanlega! Heimkeyrsla þessa daga er kl. 13:15.
Nýr matseðill!
Sett inn 14. maí 2012
HÉR er matseðill fyrir síðustu vikur skólaársins.
Bíóferð gegn einelti!
Sett inn 14. maí 2012
Á morgun fara nemendur í 6.-10. bekk í Háskólabíó að sjá heimildamynd um einelti, "Grimmd" eða "The Bully Project".
Farið verður frá Flóaskóla kl. 8:50 og komið til baka áður en skólabílar keyra heim. Ferðin er samstarfsverkefni skólans og foreldrafélagsins og felur ekki í sér kostnað fyrir nemendur að öðru leyti en því að þeir eru beðnir um að koma með kr. 1000 í fæðisgjald.

Vorskólavika leikskólabarna
|
|
|
5. bekkur í vettvangsferð í Þorlákshöfn
|
Skólaþríþraut FRÍ í 6.-7. bekk
|
|
Próftafla í 4.-10. bekk
Sett inn 30. apríl 2012
HÉR má nálgast próftöflu fyrir 4.-10. bekk. Prófdagar eru frá 16. maí - 25. maí. Öll próf og stöðukannanir fara fram á skólatíma og helst stundatafla nemenda óbreytt þess á milli.
Jákvæð forvarnarfræðsla í 5.-10. bekk
Sett inn 28. apríl 2012
Mánudaginn 30. apríl koma fulltrúar frá Marita og ABC barnahjálp í heimsókn til nemenda og foreldra í 5.-10. bekk. Tilgangur heimsóknarinnar er að vera með jákvæða forvarnarfræðslu fyrir þennan aldurshóp. Það eru Flóaskóli og Æskulýðs- og tómstundanefnd Flóahrepps sem standa fyrir fræðslunni.
Dagskráin er eftirfarandi:
Nemendur í 8.-10. bekk fá fræðslu kl. 12:35-13:55 í Flóaskóla
Nemendur OG foreldrar/forráðamenn í 5.-7. bekk fá fræðslu kl. 14:00-15:30 í Flóaskóla
Foreldrar/forráðamenn nemenda í 8.-10. bekk fá fræðslu kl. 20:00 í Flóaskóla
Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta. Frekari upplýsingar voru sendar í tölvupósti til foreldra/forráðamanna.

Blátt áfram! - fræðsla í unglingadeild
Sett inn 26. apríl 2012
Í dag kom fulltrúi frá Blátt áfram í heimsókn í 8.-10. bekk. Farið var yfir hvað kynferðislegt ofbeldi er og voru þau hvött til að styðja við hvort annað til að leita sér hjálpar og tala um svona mál. Einnig var talað um mikilvægi þess að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.
Flott fræðsla um málefni sem snertir okkur öll!
Flott fræðsla um málefni sem snertir okkur öll!
Skólamyndataka!
Sett inn 16. apríl 2012
Þriðjudaginn 17. apríl verða teknar skólamyndir af öllum bekkjum í skólanum og einstaklingsmyndir af þeim sem þess óska. Í 10. bekk er einnig boðið uppá grínmynd með bekkjarmynd.
Verð:
Bekkjarmynd kr. 2300
Einstaklingsmynd kr. 2000
10. bekkur bekkjarmynd+grínmynd kr. 2800
Þið þurfið að staðfesta með því að senda póst á kristin@floaskoli.is hvort þið viljið kaupa myndir. Greiðsla á að koma í skólann í síðasta lagi að morgni myndatöku. Myndirnar verða afhentar í kringum miðjan maí.

Myndir og fleira!
Sett inn 30. mars 2012
Nú er síðasta vika fyrir páskafrí að klárast. Vikan hefur verið annasöm og viðburðarrík hjá nemendum Flóaskóla. Nemendur 1.-7. bekkjar héldu flotta árshátíð miðvikudaginn 28. mars. Nemendur fluttu Ávaxtakörfuna við góðar undirtektir gesta. Allir stóðu sig frábærlega og unnu nemendur vel saman við uppsetningu á þessu skemmtilega verki.
Unglingadeildin, eða 8.-10. bekkur, hélt svo árshátíðina sína fimmtudagskvöldið 29. mars í Þjórsárveri. Þar var gestum boðið upp á kjúklingasúpu og ís í eftirrétt sem nemendur í heimilisfræðivali höfðu útbúið. Flestir nemendur stigu svo á stokk í hinum og þessum skemmtiatriðum sem samanstóð af söngi, leikjum, spurningakeppni og leikverkum. Frábært kvöld hjá krökkunum!
Yngri nemendur voru í páskahringekju á fimmtudegi og föstudegi þar sem þau bjuggu til páskakökur, þæfðu hin ýmsu dýr, bjuggu til skrautkúlur og skreyttu egg.
HÉRmá sjá myndir frá þessum skemmtilegu dögum!
Nemendur mæta samkvæmt stundaskrám þriðjudaginn 10. apríl.
GLEÐILEGA PÁSKA!

Árshátíð 1.-7. bekkjar!
Sett inn 27. mars 2012
Árshátíð nemenda í 1.-7. bekk verður haldin í Þjórsárveri miðvikudaginn 28. mars kl. 13:00. Nemendur ætla að sýna söngleikinn Ávaxtakörfuna.
Nemendur fara heim með foreldrum/forráðamönnum eftir sýningu.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Nemendur fara heim með foreldrum/forráðamönnum eftir sýningu.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Sigur í Stóru upplestrarkeppninni á Flúðum!
Sett inn 22. mars 2012
Þriðja og síðasta lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á Suðurlandi 2012 fór fram í félagsheimili Hrunamanna á Flúðum þriðjudaginn 20. mars kl. 14:00 – 16:00. Alls kepptu 7. bekkjar nemendur úr 5 skólum: Flúðaskóla, Flóaskóla, Grunnskóla Bláskógabyggðar, Kerhólsskóla og Þjórsárskóla. Keppnin fór fram í þremur hlutum. Fyrst lásu keppendur hluta úr sögu Kristínar Helgu Gunnarsdóttur Draugaslóð, næst völdu þau úr 10 ljóðum Gyrðis Elíassonar og fluttu og loks lásu þau ljóð að eigin vali. Dagskráin var krydduð með alls kyns öðrum listviðburðum. Nemendur úr Flúðaskóla fluttu tónlist, vinningshafar frá fyrra ári kynntu höfunda keppninnar og Helgi Jóhannesson formaður fræðslunefndar Hrunamannahrepps flutti ávarp. Dómnefnd skipuðu þau Jósefína Friðriksdóttir formaður, Þorvaldur H Gunnarsson, Linda Dögg Sveinsdóttir, Sigrún Ásgeirsdóttir og Elín Una Jónsdóttir.
Niðurstöður urðu eftirfarandi:
1. sæti: Eyrún Gautadóttir úr Flóaskóla
2. sæti: Þórarinn Guðni Helgason úr Flóaskóla
3. sæti: Eva María Larsen Bentsdóttir úr Grunnskóla Bláskógabyggðar.
Innilega til hamingju með frábæran árangur Eyrún og Þórarinn Guðni!

Þemavinna og heimsókn í 2.-4. bekk
Sett inn 12. mars 2012
Þessar vikurnar eru nemendur í 2.-4. bekk í sameiginlegri þemavinnu sem tengist Íslandi áður fyrr. Þau fóru í heimsókn í Tré og list í Forsæti og í Gamla bæinn í Meðalholtum. Einnig fengu heimsókn á dögunum í tengslum við þessa vinnu frá Sjóminjasafninu á Eyrarbakka. Meðfylgjandi myndir eru frá þemavinnunni þeirra.
Nýtt fréttabréf!
Sett inn 29. feb. 2012
HÉR má nálgast fréttabréf fyrir febrúar.
Héraðsleikar HSK 10 ára og yngri á Hvolsvelli
Sett inn 29. feb. 2012
Héraðsleikar HSK 10 ára og yngri verða haldnir á Hvolsvelli laugardaginn 3. mars og hefjast kl. 10:00. Skráningar þurfa að berast til Guðmundu á netfangið guo22@hi.is fyrir miðnætti fimmtudagskvöldið 1. mars með upplýsingum um greinarnar sem barnið ætlar að keppa í! Einnig má hringja í síma 8469775.
Sjá nánar HÉR
Sjá nánar HÉR
Annasöm vika í Flóaskóla!
Sett inn 29. feb. 2012
Vikan 27. febrúar - 2. mars er annasöm í skólanum. Á mánudaginn var undankeppni Stóru upplestrarhátíðarinnar haldin í 7. bekk. Fulltrúar okkar í ár í aðalkeppninni verða þau Eyrún Gautadóttir og Þórarinn Guðni Helgason. Varamaður er Hólmar Höskuldsson. Allir keppendur stóðu sig með mikilli prýði.
Á þriðjudaginn fóru nemendur í 1.-7. bekk á skauta á skautasvellinu í Laugardal. Dagurinn heppnaðist vel og til baka komu þreyttir en ánægðir krakkar.
Í dag, miðvikudag, fóru svo nemendur í 8.-10. bekk í skautaferð og munu sömu krakkar fara á Skólahreysti á morgun en það er haldið í Smáranum í Kópavogi.
Semsagt nóg um að vera þessa dagana í skólastarfinu!

Öskudagur í Flóaskóla!
Sett inn 22. febrúar 2012
Í dag var haldið upp á öskudag í Flóaskóla. Nemendur í 1.-7. bekk ásamt elsta árganginum úr Krakkaborg skemmtu sér við að sauma öskupoka, slá köttinn úr tunnunni, dansa og sprella! Nemendur í unglingadeild voru í leyfi í dag þar sem þau voru með vel heppnað "Royal" kvöld að kvöldi sprengidags. Myndir frá því koma von bráðar.
Meðfylgjandi eru myndir frá þessum skemmtilega degi!
Meðfylgjandi eru myndir frá þessum skemmtilega degi!
Skólahreysti 2012
sett inn 15. febrúar 2012
Nú er búið að velja í lið í Skólahreysti 2012.
Eftirfarandi nemendur keppa fyrir hönd Flóaskóla:
Armbeygjur/hreystigreip: Dagmar Öder Einarsdóttir, 9. bekk
Upphífingar/dýfur: Jón Þór Pálsson, 9. bekk
Hraðabraut stelpur: Hjördís Björg Viðjudóttir, 10. bekk
Hraðabraut strákar: Arnar Einarsson, 10. bekk
Varamaður stelpur: Helga Margrét Höskuldsdóttir, 9. bekk
Varamaður strákar: Ægir Atlason, 8. bekk
Krakkarnir mæta nú í aukatíma til að æfa sig fyrir keppnina en það er Hulda Kristjánsdóttir sem leiðbeinir þeim og fylgir þeim á keppnina. Í aukatímunum eru þau að prufa æfingar svipaðar og eru í keppninni, gera þol og þrekæfingar og svo verður videotími þar sem þau horfa á myndbönd frá fyrri keppnum.
Nemendur í 8. - 10. bekk munu fara með á keppnina sem stuðningsmenn en keppnin fer fram í Smáranum í Kópavogi fimmtudaginn 1. mars kl.13:00. Foreldrar eru einnig velkomnir!
Liturinn okkar í ár er svartur og munu því keppendur okkar og stuðningsmenn klæðast svörtu og mynda þannig flotta liðsheild.

Olweus: Niðurstöður úr nemendakönnun
sett inn 13. febrúar 2012
Fimmtudaginn 9. febrúar voru niðurstöður úr nemendakönnun Olweusar kynntar fyrir foreldrum. Smellið HÉR til að kynna ykkur niðurstöðurnar. Þessi mál snerta okkur öll og bestur árangur næst ef heimili og skóli standa saman í vinnu gegn einelti. Tökum höndum saman gegn einelti!
Kynning á ML og FSu - miðvikudagskvöldið 15. febrúar kl. 20:00 í Flóaskóla!
sett inn 13. febrúar 2012
Miðvikudagskvöld kl. 20:00 býður Flóaskóli nemendum í 10. bekk og foreldrum þeirra á kynningu á tveimur framhaldsskólum, FSu og Menntaskólanum að Laugarvatni. Námsráðgjafar beggja skóla koma á fundinn og kynna námsbrautir, anna- og áfangakerfi og bekkjarkerfi.
Þetta er tilvalið tækifæri til að kynnast skólunum tveimur nánar og spyrja námsráðgjafana spurninga.
Nemendur og foreldrar - mætið saman og kynnið ykkur skólana! Fundurinn er á miðvikudag, 15. feb, kl. 20 í Flóaskóla.

PISA könnun í 10. bekk
sett inn 10. febrúar 2012
Ísland er ein þátttökuþjóða í umfangsmikilli alþjóðlegri rannsókn sem fer fram um þessar mundir á færni 15 ára nemenda í lestri, náttúrufræði og stærðfræði. Rannsóknin er á vegum OECD (Efnahags- og framfarastofnunarinnar) og nefnist PISA (Programme for International Student Assessment). Lesa meira....
Matseðill febrúar-mars
sett inn 10. febrúar 2012
HÉR má nálgast nýjan matseðil fyrir tímabilið 13. febrúar - 23. mars.
Fjáröflun í 9. bekk
sett inn 3. febrúar 2012
Nú eru nemendur í 9. bekk að hefja fjáröflun fyrir fyrirhugaða útskriftarferð vorið 2013. Á námsmatsdegi buðu níundubekkingar upp á bílaþrif á planinu við skólann. Fjölmargir nýttu sér að láta þrífa bílinn að utan sem innan á meðan setið var í viðtali. Meðfylgjandi myndir voru teknar við þrifin og eins og sjá má gátu foreldrar nýtt tímann til ýmissa hluta á meðan beðið var eftir bílnum :-)
Flóaskólaþing í 8.-10. bekk
sett inn 3. febrúar 2012
Þriðjudaginn 31. janúar héldu nemendur í 8.-10. bekk Flóaskólaþing. Þar var nemendum skipt upp í 8 hópa og áttu hópanir að ræða um ákveðin málefni s.s. framkomu, umgengni, móral, aðstöðu og fleira. Að lokinni hópavinnu kynntu nemendur svo niðurstöður fyrir hinum.
Flott vinna hjá krökkunum!
Flott vinna hjá krökkunum!
Umhverfis- og starfsfræðsla í 8. bekk
sett inn 3. febrúar 2012
Miðvikudaginn 25. janúar fengu nemendur í 8. bekk hana Kolbrúnu Júlíusdóttur í heimsókn til sín til að sýna þeim leikhúsförðun. Meðfylgjandi myndir tala sínu máli!
Nýtt fréttabréf!
sett inn 27. janúar 2012
Þorrablót!
Sett inn föstudaginn 20. janúar 2012
Í dag héldu nemendur og starfsfólk Flóaskóla upp á þorrablót í Þjórsárveri. Matráðskonur töfruðu fram dýrindis þorramat sem allir smökkuðu á. Nemendur í 5. bekk voru með flott atriði í upphafi þorrablóts en þau höfðu samið ljóð sem þau lásu upp. Einnig sungu allir Þorraþrælinn undir dyggri stjórn Kolbrúnar tónmenntarkennara.
Gleðilegt ár
Sett inn 4. janúar 2012
Flóaskóli hófst aftur eftir jólaleyfi í dag, miðvikudaginn 4. janúar og var gaman að sjá nemendur aftur eftir gott frí.
Skólastarfið hefst strax af fullum krafti og í lok janúar eru námsmatsdagar í skólanum og er þeim fylgt eftir með foreldraviðtölum í byrjun febrúar.
Með ósk um gott samstarf á nýju ári!
Hulda Kristjánsdóttir, deildarstjóri.

Kæru nemendur og foreldrar!
Sett inn 16. desember 2011
Starfsfólk Flóaskóla óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Þökkum gott samstarf á árinu sem er að líða.
Þökkum gott samstarf á árinu sem er að líða.
Síðustu dagar fyrir jól
Sett inn 13. des. 2011
Þessa dagana eru nemendur í óðaönn að undirbúa jólin í skólanum með óhefðbundnum kennslustunum inn á milli venjulegra. Nemendur í 1.-7. bekk eru í jólahringekju þar sem þau fá að gera hin ýmsu verkefni. Nemendur í unglingadeild gera piparkökuhús og laufabrauð ásamt ýmiskonar föndri :-)
Miðvikudaginn 14. desember kl. 13:00 er jólaskemmtun nemenda í 1.-7. bekk í Þjórsáveri. Allir bekkir hafa æft atriði sem flutt verður og vonumst við eftir að sjá sem flesta gesti. Að lokinni jólaskemmtun í Þjórsárveri verður sýning á munum nemenda inni í skóla. Nemendur eru beðnir um að taka sína muni með heim að sýningu lokinni. Enginn heimkeyrsla skólabíla er hjá 1.-7. bekk þar sem nemendur fara heim með foreldrum. Nemendur í 8.-10. bekk fara heim með skólabílum kl. 12:35 þennan dag.
Á fimmtudegi 15. desember mæta allir nemendur í skólann að morgni og fara heim kl. 13:55 líkt og venjulega. Um kvöldið kl. 20:00 halda nemendur í 8.-10. bekk jólaskemmtun í Þjórsárveri. Þar verður ýmislegt skemmtilegt í gangi s.s uppistand, leikrit og ljúffengar kræsingar svo eitthvað sé nefnt. Hlökkum til að sjá sem flesta gesti.
Föstudagurinn 16. desember er hefðbundinn hjá 1.-7. bekk (1.-5. bekkur fara í sund og 6.-7. bekkur í íþróttir). Nemendur í 8.-10. bekk mæta ekki í skólann þennan dag.
Mánudaginn 19. desember mæta nemendur í skólann að morgni og halda stofujól ásamt sínum bekkjarkennara. Þá verður róleg og þægileg stund þar sem nemendur fá mandarínur, smákökur og kakó, lesa jólakortin sín og eru með pakkaleik. Umsjónarkennarar hafa sent foreldrum póst þar sem þetta er útlistað nánar. Kl. 11:00 er hátíðarmatur í Þjórsárveri fyrir alla nemendur. Heimkeyrsla er svo að loknum mat kl. 11:45.
Athugið að skólavistun er ekki opin þennan dag.
Kristín skólastjóri er í leyfi dagana 14.-19. desember og 3.-5. janúar. Hulda deildarstjóri er staðgengill skólastjóra. Vinsamlegast hafið samband við hana ef þörf krefur: 866-3245 / hulda@floaskoli.is.
Kennsla hefst að loknu jólafríi 4. janúar kl. 8:10.

Fréttabréf nóvember-desember
Sett inn 5. desember 2011
Nýtt fréttabréf fyrir nóvember-desember má nálgast undir liðnum "skólinn" - "fréttabréf".
Menntaverðlaun Suðurlands
Sett inn 29. nóv. 2011
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita árlega verðlaun fyrir framúrskarandi framlag á sviði menntunar á Suðurlandi sem um leið er hvatning til frekari dáða. Verðlaunin verða veitt í fjórða sinn nú í vetur. Allir þeir sem koma að skólastarfi með einhverjum hætti geta fengið verðlaunin; grunnskólar, leikskólar, framhaldsskólar, símenntunarmiðstöðvar, háskólastofnanir, kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélög/skólanefndir, foreldrafélög o.fl.
Veitt verða peningaverðlaun sem nýtt verði til áframhaldandi menntunarstarfs. Jafnframt fylgir verðlaununum formleg viðurkenning. Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í tengslum við hátíðarfund Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands í janúar nk.
Hér með er óskað eftir tilnefningum til verðlaunanna. Rétt til að tilnefna til verðlaunanna hafa allir þeir sem tengjast skóla- og menntunarstarfi með einhverjum hætti, sveitarfélög, skólanefndir, foreldrar, kennarar og starfsfólk skóla og annað áhugafólk um menntun og skólastarf. Tilnefningum skal fylgja ítarlegur rökstuðningur. Menntamálanefnd SASS velur úr tilnefningum og veitir verðlaunin. Tilnefningar skulu hafa borist til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56 Selfossi, eigi síðar en 20. desember nk.
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga

Kveikt á jólatré Flóaskóla
Sett inn 29. nóvember 2011
Í dag kveiktum við á jólatré Flóaskóla í morgunmyrkrinu og miklu frosti! Við sungum 2 jólalög og það var svo Jónatan Mikael í 5. bekk sem fékk þann heiður þetta árið að tendra ljósin á trénu. Fallega jólatréð fengum við að gjöf frá Skógræktarfélagi Villingaholtshrepps og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Kveðja, nemendur og starfsfólk Flóaskóla
Kveðja, nemendur og starfsfólk Flóaskóla
Dagur íslenskrar tungu
sett inn 11. nóv. 2011
Miðvikudaginn 16. nóvember verður dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur um allt land.
Dagur íslenskrar tungu var fyrst haldinn hátíðlegur árið 1996. Fjölmargir aðilar lögðu hönd á plóg og efndu til viðburða af þessu tilefni. Má þar nefna fjölmiðla, skóla, stofnanir og félög. Menntamálaráðuneytið hélt hátíðarsamkomu og veitti þar í fyrsta sinn verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskunnar. Dagur íslenskrar tungu hefur síðan verið haldinn hátíðlegur með svipuðu sniði og sífellt fleiri aðilar taka virkan þátt í honum með ýmsu móti.
Í Flóaskóla höldum við að sjálfsögðu upp á daginn. Nemendur munu koma saman á sal í Þjórsárveri
kl. 10:30 og allir bekkir flytja stutt atriði í tilefni dagsins og þar á meðal flytur 2.-5. bekkur tónlistaratriði sem flutt var í Hörpunni 28. október. Foreldrar/forráðamenn velkomnir.

Myndir af danssýningunni þann 10. nóvember eru undir "myndir" hér til hliðar
DANSSÝNING!
Sett inn 9. nóv. 2011
Danssýning fyrir foreldra nemenda í 1.-7. bekk verður fimmtudaginn 10. nóvember í Þjórsárveri kl. 12:30-13:15. Hlökkum til að sjá ykkur!
-Starfsfólk Flóaskóla og Dansskóla Jóns Péturs og Köru.
-Starfsfólk Flóaskóla og Dansskóla Jóns Péturs og Köru.
Dagur gegn einelti
Sett inn 8. nóv. 2011
Í dag héldum við upp á Dag gegn einelti í skólanum.
Dagurinn er tileinkaður þessu málefni á landsvísu þar sem undirritaður var þjóðarsáttmáli um jákvæð samskipti.
Einelti spyr ekki um aldur, þjóðfélagshópa eða kyn og það þrífst einfaldlega allsstaðar þar sem það er látið viðgangast. Ábyrgð okkar allra er því mikil og það er í okkar höndum að vinna bug á þessu þjóðfélagsmeini. Það er ekki flókið ef allir taka höndum saman og sannmælast um ákveðna sátt , þjóðarsáttmála um jákvæð samskipti.
Í tilefni af baráttudegi gegn einelti þann 8. nóvember var opnuð heimasíðan www.gegneinelti.is og þar gefst fólki kostur á að undirrita eftirfarandi sáttmála:
Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti
- Við undirrituð skuldbindum okkur til þess að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar.
- Við munum standa vörð um rétt fólks til þess að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt.
- Við munum sérstaklega gæta réttar barna og ungmenna sem og allra hópa sem eiga sér hvorki málsvara né sterka rödd.
- Við munum öll, hvert á okkar sviði, skuldbinda okkur til að hafa áhrif til góðs á nánasta umhverfi okkar.
- Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er.
Nemendur Flóaskóla unnu allir að gerð sáttmála hér í skólanum og undirrituðu hann með því að setja handafar og nafn sitt á veggspjöld. Nemendur unnu í átta aldursblönduðum hópum. Veggspjöldin hanga nú víða um skólann og minna okkur á að við höfum skrifaðu undir sáttmála gegn einelti.
Hvetjum alla til að skoða heimasíðuna: www.gegneinelti.is og skrifa þar undir þjóðarsáttmála gegn einelti!

Rafræn foreldrakönnun
Sett inn 3. nóv. 2011
Dagana 14.-21. október var lögð fyrir rafræn könnun á meðal foreldra. Spurt var um ýmis atriði er varða upphaf skólaárins 2011-2012. 47 heimili svöruðu könnuninni en nemendur koma frá 58 heimilum. Svarhlufall var því 81%. Helstu niðurstöður eru þær að foreldrar/forráðamenn eru almennt ánægðir með að föstudagur fyrir réttir sé frídagur. Einnig virðast skólakynningarnar í september hafa hentað flestum vel. Meirihluta finnst í lagi að gefa fréttabréfið út á rafrænu formi en þó er nokkuð stór hluti sem vill það ekki eða 40,4%. Fáir nýta sér heimasíðuna til að nálgast upplýsingar frá skólanum.
Fjölmargir nýttu sér dálk í könnuninni til að skrifa sérstakar athugasemdir og var gaman að sjá að fólk virðist vera almennt ánægt með skólastarfið.
Það er mikilvægur hluti af öllu skólastarfi að fá viðhorf og skoðanir þeirra sem að starfinu standa. Foreldrar eru hvattir til að koma skoðunum og hugleiðingum sínum á framfæri við skólastjórnendur eða umsjónarkennara.
Bestu kveðjur frá Flóaskóla!

Kennaranemar frá Háskólanum á AkureyriSett inn 3. nóv. 2011
Þessa dagana eru 4 kennaranemar í Flóaskóla sem koma frá Háskólanum á Akureyri. Nemendur í 2.-5. bekk koma fram í Hörpu!
Í tilefni af 60 ára afmæli Tónmennta-kennarafélags Íslands verða haldnir tónleikar í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu í Reykjavík föstudaginn 28. október. Kolbrún tónmenntakennari fer á tónleikana með hóp nemenda í 2.-5. bekk sem munu flytja lag úr Kardimommubænum. Krakkarnir munu syngja og spila á hin ýmsu hljóðfæri. Um 500 manns komast í sæti og þurfa þeir sem vilja fara með að hafa hraðar hendur og láta Kolbrúnu vita ef þeir vilja koma með, kolbrun@floaskoli.is eða skrifstofa skólans 486-3460.
Farið verður með rútu frá Flóaskóla kl. 14 en tónleikarnir standa frá kl. 16-18. Haustþing KS - skóli lokaður á föstudagHeimkeyrsla frá skóla verður kl. 12:35 á morgun, fimmtudaginn 6. október vegna haustþings Kennarafélags Suðurlands. Á föstudag er starfsdagur kennara og skólinn því lokaður.
Þeir sem eiga börn skráð í skólavistun: skólavistun er opin á fimmtudeginum frá kl. 12:35-16:30 fyrir þau börn sem eru skráð á fimmtudögum. Vinsamlegast sendið skilaboð í skólann ef skráð börn eiga EKKI að fara í vistunina. |
Íþróttir - INNI
Íþróttir hjá öllum bekkjum færast nú inn. Nemendur þurfa að vera með íþróttafatnað þá daga sem íþróttir eru. Nemendur í 1.-5. bekk og stúlkur í 8.-9. bekk eru í íþróttum í Þjórsárveri en 6.-7. bekkur, drengir í 8.-9. bekk og 10. bekkur eru í Þingborg.
Fréttabréf októberFréttabréf októbermánaðar hefur nú verið sent heim með nemendum og er einnig aðgengilegt hér á heimasíðunni undir: skólar - fréttabréf
|
Vinadagur![]() Vinir í 5. bekk og 10. bekk
Mánudaginn 26. september var fyrsti formlegi vinadagurinn haldinn á þessu skólaári. Þá komu saman vinabekkir og áttu nemendur saman skemmtilega stund.
Vinabekkir eru: 1. bekkur og 6.-7. bekkur 2.-3. bekkur og 8. bekkur 4. bekkur og 9. bekkur 5. bekkur og 10. bekkur. Markmiðið með vinabekkjunum er að efla tengsl á milli yngri og eldri nemenda, auka samkennd og samstarf og ýta undir ábyrgð eldri nemenda í samskiptum við þá yngri. ![]() Vinir í 2.-3. bekk og 8. bekk
Skólakynningar í FlóaskólaKæru foreldrar nemenda í Flóaskóla.
Skólakynningar verða fyrir foreldra í skólanum sem hér segir: mánudaginn 26. september kl. 8:10-9:30 fyrir 1.-5. bekk. miðvikudaginn 28. september kl. 8:10-9:30 fyrir 6.-10. bekk. Kynningarnar hefjast með stuttu spjalli við skólastjóra, síðan fara foreldrar í kennslustofur barna sinna þar sem umsjónarkennarar og nemendur sjá sameiginlega um kynningu á námsefni, verkefnum og öðru starfi í bekkjunum. Vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta. |
Nemendaráð Flóaskóla
Nýkjörið nemendaráð Flóaskóla er skipað þeim Þorgils Kára Sigurðssyni 8. bekk, Helgu Margréti Höskuldsdóttur 9. bekk, Margrét Helgu Steindórsdóttur 10. bekk og Halldóri Bjarnasyni 10. bekk. Tengiliður ráðsins við skólann er Sigrún Árnadóttir, umsjónarkennari í 8. og 10. bekk.
LúsFlóaskóla hefur borist tilkynning um lús.
Hér má sjá ráðleggingar til foreldra um hvað best er að gera þegar lús kemur upp. Endilega fylgist vel með og látið vita ef upp koma fleiri tilfelli - það er samvinnuverkefni okkar allra að koma í veg fyrir að þessi vágestur haldi áfram að angra okkur. |
Fjölbreytt tónlistarnám í Flóaskóla
Það er sérlega ánægjulegt að sjá hve vel Flóahreppur hefur stutt við tónlistarnám í héraði í gegnum árin. Nemendur læra á mörg mismunandi hljóðfæri og sækja kennslu ýmist á Selfoss eða í Flóaskóla. Fjölbreytni í námsvali í Flóaskóla hefur aukist ár frá ári og er núna kennt á básúnu, klarínettu, blokkflautu, gítar, fiðlu og píanó á vegum Tónlistarskólans, auk þess sem nemendur í 2. bekk fá tónlistarforskóla sér að kostnaðarlausu. Í vetur býðst að auki kennsla á þverflautu í Flóaskóla.
Örfáir tímar eru enn lausir í Flóahreppi og geta þeir sem áhuga hafa sótt um nám á píanó eða fiðlu hjá Jane Ade Sutarjo, þverflautu hjá Kolbrúnu Berglindi Grétarsdóttur og málmblásturshljóðfæri hjá Ian Wilkinson. Kennsla fer fram í Flóaskóla.
Umsóknir má nálgast á heimasíðu Tónlistarskólans, www.tonar.is – Umsókn, og nánari upplýsingar fást í síma skólans 482 1717. Umsóknarfrestur er til 25. september.

Skólasetning Flóaskóla
Skólasetning Flóaskóla verður miðvikudaginn 24. ágúst kl. 13:00.Nemendur og aðstandendur koma saman í Þjórsárveri þar sem skólastjóri setur skólann og að því loknu fara nemendur og foreldrar ásamt umsjónarkennurum yfir í Flóaskóla.
Stundatöflur nemenda
Nú eru stundatöflur nemenda aðgengilegar á heimasíðunni undir flipanum nemendur. Þar er smellt á bekkinn og þá koma upplýsingar um umsjónarkennara, nemendur í bekknum og stundatafla. Einnig er hægt að nálgst stundatöflur inni á mentor.is.
Foreldrar barna sem eru að hefja skólagöngu í 1. bekk sem og nýjir nemendur við Flóaskóla fá sent aðgangsorð inn á Mentor á næstu dögum.
Foreldrar barna sem eru að hefja skólagöngu í 1. bekk sem og nýjir nemendur við Flóaskóla fá sent aðgangsorð inn á Mentor á næstu dögum.
Innkaup á námsgögnum skólaárið 2011-2012
Eins og undanfarin tvö skólaár ætlar Flóaskóli að bjóða upp á innkaup námsgagna fyrir nemendur gegn vægu gjaldi sem greiðist í upphafi skólaárs. Í því felst að skólinn kaupir skriffæri, stílabækur og annað sem nemendur þurfa að nota við vinnu sína í skólanum. Foreldrar/forráðamenn hafa almennt verið ánægðir með þetta fyrirkomulag en viðhorfskönnun frá því s.l. vor sýnir að tæplega 92% foreldra/forráðamanna eru ánægðir með að skólinn sjái um innkaupin.
Rétt er að benda á að nemendur nota námsgögnin í skólanum og geyma þau þar en þufa að eiga viðeigandi skriffæri og annað heima, sem nota þarf við heimanám. Þess er krafist að umgengni um námsgögn í skóla sé góð og að ávallt sé farið vel með þau gögn sem verið er að nota.
Ef þið hafið aðrar óskir um þetta fyrirkomulag þ.e. óskið eftir að sjá sjálf um innkaup námsgagna hjá ykkar barni þá bið ég ykkur um að hafa samband við undirritaða í síma eða tölvupósti innan 7 daga, eða fyrir 9. ágúst. Ef ekki berast athugasemdir frá ykkur verður litið svo á að þið felið skólanum að annast innkaupin.
Með kveðju
Hulda Kristjánsdóttir
deildarstjóri í Flóaskóla
sími: 486-3460/866-3245
tölvupóstur: hulda@floaskoli.is

Niðurstöður úr eineltiskönnunFimmtudaginn 12. maí var haldinn kynningarfundur vegna eineltiskönnunar Olweusar. Bréf þar sem niðurstöðurnar eru kynntar verður sent heim með öllum nemendum. Hér má einnig nálgast niðurstöðurnar.
Smellið hér til að sækja niðurstöður könnunar. |