Flóaskóli - S: 486-3460 - floaskoli@floaskoli.is
  • Fréttir
  • Um skólann
  • Skólinn
    • Eyðublöð
    • Fréttabréf
    • Matseðill
    • Nefndir og ráð
    • Sjálfsmat Flóaskóla
    • Skólaakstur
    • Skóladagatal
    • Skólaráð
    • Skýrsla fræðslunefndar
    • Starfsáætlun Flóaskóla
    • Starfsmenn 2012-2013
    • Stundatöflur
  • Námið
    • Heimanám
    • Einstaklingsnámskrár
    • Náms- og starfsráðgjöf
    • Skólanámskrá
    • Skólareglur og skólalykill
  • Nemendur
    • Nemendaverndarráð
    • 1. bekkur
    • 2. bekkur
    • 3.-4. bekkur
    • 5. bekkur
    • 6.-7. bekkur
    • 8. bekkur
    • 9. bekkur
    • 10. bekkur
    • Félagslíf
    • Nemendafélag
  • Foreldrar
    • Bekkjarfulltrúar
    • Foreldrafélag
    • Samstarf foreldra og skóla
  • Einelti - Olweus
  • Hagnýtt
    • H6 - heilsugæslan
    • Inflúensa
    • Tákn með tali
    • Örugg netnotkun
    • PDF reader
  • Myndir
  • Félagsmiðstöðin Zone

Heimanám

Nám er vinna. Heimanám er mikilvægur þjálfunarþáttur allra nemenda og hluti af námi þeirra við skólann. Markmið heimanáms er að dýpka og festa í sessi þekkingu, æfa ákveðna námsþætti og að nemendur temji sér skipulögð vinnubrögð. Hversu mikil heimavinna er fer eftir námsgreinum, kennslutilhögun einstakra kennara, vinnuhraða nemenda, aldri þeirra og þroska.
Vinna ber öll heimaverkefni af vandvirkni og samviskusemi og skila þeim á tilsettum tíma.

Brýnt er að foreldrar fylgist vel með námi barna sinna og skapi þeim viðunandi aðstöðu til heimanáms og aðstoði þau eftir þörfum. Virk þátttaka foreldra í heimanámi barna er mikilvæg á þann hátt að sýna áhuga á vinnu barnsins, fylgjast með gengi þess í náminu, veita aðstoð og ekki síst að veita aðhald þegar þess er þörf. Einnig er mikilvægt að foreldrar aðstoði börnin við að hafa röð og reglu á skólabókum og öðrum námsgögnum og kenni þeim að bera virðingu fyrir þeim. Fyrstu árin felst aðstoð við heimanám aðallega í að hlusta á heimalestur og ræða efnisinnihaldið. Smám saman verða verkefnin fleiri, flóknari og tímafrekari. Til að mæta auknum kröfum þurfa eldri nemendur að tileinka sér skilvirk vinnubrögð og skipuleggja heimanám sitt í samvinnu við foreldra.

Með góðri samvinnu heimilis og skóla eiga nemendur að geta náð betri árangri og tileinkað sér vinnubrögð sem nýtast þeim í frekara námi eða starfi.

Munum að viðhorf nemenda til náms helst í hendur við árangur og viðhorf mótast að miklu leyti heima fyrir.

Foreldrar eru hvattir til að hafa samband við kennara ef þeir hafa spurningar eða athugasemdir vegna heimanáms. 



 

Create a free website with Weebly