Flóaskóli - S: 486-3460 - Fax: 486-3461 - kristin@floaskoli.is 
  • Fréttir
  • Um skólann
  • Skólinn
    • Eyðublöð
    • Fréttabréf
    • Matseðill
    • Nefndir og ráð
    • Sjálfsmat Flóaskóla
    • Skólaakstur
    • Skóladagatal
    • Skólaráð
    • Skýrsla fræðslunefndar
    • Starfsáætlun Flóaskóla
    • Starfsmenn 2011-2012
    • Stundatöflur
  • Námið
    • Heimanám
    • Einstaklingsnámskrár
    • Skólanámskrá
    • Skólareglur og skólalykill
  • Nemendur
    • Nemendaverndarráð
    • 1. bekkur
    • 2.-3. bekkur
    • 4. bekkur
    • 5. bekkur
    • 6.-7. bekkur
    • 8. bekkur
    • 9. bekkur
    • 10. bekkur
    • Félagslíf
    • Nemendafélag
  • Foreldrar
    • Bekkjarfulltrúar
    • Foreldrafélag
    • Samstarf foreldra og skóla
  • Einelti - Olweus
  • Hagnýtt
    • H6 - heilsugæslan
    • Inflúensa
    • Tákn með tali
    • Örugg netnotkun
    • PDF reader
  • Hafa samband
  • Myndir

Nýr matseðill!
Sett inn 14. maí 2012

HÉR er matseðill fyrir síðustu vikur skólaársins.

Bíóferð gegn einelti!
Sett inn 14. maí 2012

Á morgun fara nemendur í 6.-10. bekk í Háskólabíó að sjá heimildamynd um einelti, "Grimmd" eða "The Bully Project".

Farið verður frá Flóaskóla kl. 8:50 og komið til baka áður en skólabílar keyra heim. Ferðin er samstarfsverkefni skólans og foreldrafélagsins og felur ekki í sér kostnað fyrir nemendur að öðru leyti en því að þeir eru beðnir um að koma með kr. 1000 í fæðisgjald.

Vorskólavika leikskólabarna
Sett inn 14. maí 2012

Í síðustu viku lauk vorskólaviku leikskólabarna. Börnin komu í 5 daga í Flóaskóla og fengu að kynnast hinum ýsmsu greinum og verkefnum. Vorskólavikan er lokahnykkurinn á aðlögun elsta árgangs leikskólans vegna skólagöngu þeirra en þau hafa heimsótt skólann jafnt og þétt í allan vetur.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá þessum skemmtilegu dögum!

5. bekkur í vettvangsferð í Þorlákshöfn
Sett inn 11. maí 2012

Þriðjudaginn 8. maí fóru nemendur í 5. bekk í heimsókn í nokkur fyrirtæki í Þorlákshöfn. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá þessum skemmtilegu heimsóknum.

Skólaþríþraut FRÍ í 6.-7. bekk
Sett inn 10. maí 2012

Nemendur í 6.-7. bekk tóku þátt í Skólaþríþraut FRÍ í apríl. Stigahæstu keppendur okkar unnu sér svo þátttökurétt á lokakeppni Skólaþríþrautarinnar í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum sem fram fór laugardaginn 5. maí. Það voru þau Ýmir Atlason, Stefán Narfi Bjarnason og Sunna Skeggjadóttir sem kepptu fyrir hönd Flóaskóla í lokakeppninni. Árangur þeirra var stórglæsilegur og komust bæði Sunna og Stefán Narfi á efsta pall í kúluvarpi í sínum flokkum.
Þríþrautarverkefnið er skipulagt af Frjálsíþróttasambandi Íslands og sjá skólar um framkvæmd á undankeppnum. Krakkarnir safna ákveðið mörgum stigum fyrir árangur í grein sinni og þeir sem ná besta samanlagða árangrinum yfir landið vinna sér þátttökurétt í lokakeppninni.
Frábær árangur hjá krökkunum!

Próftafla í 4.-10. bekk
Sett inn 30. apríl 2012

HÉR má nálgast próftöflu fyrir 4.-10. bekk. Prófdagar eru frá 16. maí - 25. maí. Öll próf og stöðukannanir fara fram á skólatíma og helst stundatafla nemenda óbreytt þess á milli.

Jákvæð forvarnarfræðsla í 5.-10. bekk
Sett inn 28. apríl 2012

Mánudaginn 30. apríl koma fulltrúar frá Marita og ABC barnahjálp í heimsókn til nemenda og foreldra í 5.-10. bekk. Tilgangur heimsóknarinnar er að vera með jákvæða forvarnarfræðslu fyrir þennan aldurshóp. Það eru Flóaskóli og Æskulýðs- og tómstundanefnd Flóahrepps sem standa fyrir fræðslunni. 

Dagskráin er eftirfarandi:

Nemendur í 8.-10. bekk fá fræðslu kl. 12:35-13:55 í Flóaskóla
Nemendur OG foreldrar/forráðamenn í 5.-7. bekk fá fræðslu kl. 14:00-15:30 í Flóaskóla
Foreldrar/forráðamenn nemenda í 8.-10. bekk fá fræðslu kl. 20:00 í Flóaskóla

Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta. Frekari upplýsingar voru sendar í tölvupósti til foreldra/forráðamanna.

Blátt áfram! - fræðsla í unglingadeild
Sett inn 26. apríl 2012

Picture
Í dag kom fulltrúi frá Blátt áfram í heimsókn í 8.-10. bekk. Farið var yfir hvað kynferðislegt ofbeldi er og voru þau hvött til að styðja við hvort annað til að leita sér hjálpar og tala um svona mál. Einnig var talað um mikilvægi þess að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.

Flott fræðsla um málefni sem snertir okkur öll!

Skólamyndataka!
Sett inn 16. apríl 2012

Þriðjudaginn 17. apríl verða teknar skólamyndir af öllum bekkjum í skólanum og einstaklingsmyndir af þeim sem þess óska. Í 10. bekk er einnig boðið uppá grínmynd með bekkjarmynd.

Verð:
Bekkjarmynd kr. 2300
Einstaklingsmynd kr. 2000
10. bekkur bekkjarmynd+grínmynd kr. 2800

Þið þurfið að staðfesta með því að senda póst á
kristin@floaskoli.is hvort þið viljið kaupa myndir. Greiðsla á að koma í skólann í síðasta lagi að morgni myndatöku. Myndirnar verða afhentar í kringum miðjan maí.

Myndir og fleira!
Sett inn 30. mars 2012

Picture
Nú er síðasta vika fyrir páskafrí að klárast. Vikan hefur verið annasöm og viðburðarrík hjá nemendum Flóaskóla. Nemendur 1.-7. bekkjar héldu flotta árshátíð miðvikudaginn 28. mars. Nemendur fluttu Ávaxtakörfuna við góðar undirtektir gesta. Allir stóðu sig frábærlega og unnu nemendur vel saman við uppsetningu á þessu skemmtilega verki.
Unglingadeildin, eða 8.-10. bekkur, hélt svo árshátíðina sína fimmtudagskvöldið 29. mars í Þjórsárveri. Þar var gestum boðið upp á kjúklingasúpu og ís í eftirrétt sem nemendur í heimilisfræðivali höfðu útbúið. Flestir nemendur stigu svo á stokk í hinum og þessum skemmtiatriðum sem samanstóð af söngi, leikjum, spurningakeppni og leikverkum. Frábært kvöld hjá krökkunum!
Yngri nemendur voru í páskahringekju á fimmtudegi og föstudegi þar sem þau bjuggu til páskakökur, þæfðu hin ýmsu dýr, bjuggu til skrautkúlur og skreyttu egg.
HÉRmá sjá myndir frá þessum skemmtilegu dögum!

Nemendur mæta samkvæmt stundaskrám þriðjudaginn 10. apríl.

GLEÐILEGA PÁSKA!

Árshátíð 1.-7. bekkjar!
Sett inn 27. mars 2012

Picture
Árshátíð nemenda í 1.-7. bekk verður haldin í Þjórsárveri miðvikudaginn 28. mars kl. 13:00. Nemendur ætla að sýna söngleikinn Ávaxtakörfuna. 

Nemendur fara heim með foreldrum/forráðamönnum eftir sýningu.

Hlökkum til að sjá sem flesta!


Sigur í Stóru upplestrarkeppninni á Flúðum!
Sett inn 22. mars 2012

Picture
Þriðja og síðasta lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar á Suðurlandi 2012 fór fram í félagsheimili Hrunamanna á Flúðum þriðjudaginn 20. mars kl. 14:00 – 16:00.    Alls kepptu 7. bekkjar nemendur úr 5 skólum: Flúðaskóla, Flóaskóla, Grunnskóla Bláskógabyggðar, Kerhólsskóla og Þjórsárskóla.  Keppnin fór fram í þremur hlutum. Fyrst lásu keppendur hluta úr sögu Kristínar Helgu Gunnarsdóttur Draugaslóð, næst völdu þau úr 10 ljóðum Gyrðis Elíassonar og fluttu og loks lásu þau ljóð að eigin vali.  Dagskráin var krydduð með alls kyns öðrum listviðburðum. Nemendur úr Flúðaskóla fluttu tónlist, vinningshafar frá fyrra ári kynntu höfunda keppninnar og Helgi Jóhannesson formaður fræðslunefndar Hrunamannahrepps flutti ávarp.  Dómnefnd skipuðu þau Jósefína Friðriksdóttir formaður, Þorvaldur H Gunnarsson, Linda Dögg Sveinsdóttir, Sigrún Ásgeirsdóttir og Elín Una Jónsdóttir.

Niðurstöður urðu eftirfarandi:
1. sæti: Eyrún Gautadóttir úr Flóaskóla
2. sæti: Þórarinn Guðni Helgason úr Flóaskóla
3. sæti: Eva María Larsen Bentsdóttir úr Grunnskóla Bláskógabyggðar.

Innilega til hamingju með frábæran árangur Eyrún og Þórarinn Guðni!

Þemavinna og heimsókn í 2.-4. bekk
Sett inn 12. mars 2012

Þessar vikurnar eru nemendur í 2.-4. bekk í sameiginlegri þemavinnu sem tengist Íslandi áður fyrr. Þau fóru í heimsókn í Tré og list í Forsæti og í Gamla bæinn í Meðalholtum. Einnig fengu heimsókn á dögunum í tengslum við þessa vinnu frá Sjóminjasafninu á Eyrarbakka. Meðfylgjandi myndir eru frá þemavinnunni þeirra.

Nýtt fréttabréf!
Sett inn 29. feb. 2012

HÉR má nálgast fréttabréf fyrir febrúar.

Héraðsleikar HSK 10 ára og yngri á Hvolsvelli
Sett inn 29. feb. 2012

Héraðsleikar HSK 10 ára og yngri verða haldnir á Hvolsvelli laugardaginn 3. mars og hefjast kl. 10:00. Skráningar þurfa að berast til Guðmundu á netfangið guo22@hi.is fyrir miðnætti fimmtudagskvöldið 1. mars með upplýsingum um greinarnar sem barnið ætlar að keppa í! Einnig má hringja í síma 8469775.

Sjá nánar HÉR

Annasöm vika í Flóaskóla!
Sett inn 29. feb. 2012

Vikan 27. febrúar - 2. mars er annasöm í skólanum. Á mánudaginn var undankeppni Stóru upplestrarhátíðarinnar haldin í 7. bekk. Fulltrúar okkar í ár í aðalkeppninni verða þau Eyrún Gautadóttir og Þórarinn Guðni Helgason. Varamaður er Hólmar Höskuldsson. Allir keppendur stóðu sig með mikilli prýði.
Á þriðjudaginn fóru nemendur í 1.-7. bekk á skauta á skautasvellinu í Laugardal. Dagurinn heppnaðist vel og til baka komu þreyttir en ánægðir krakkar.
Í dag, miðvikudag, fóru svo nemendur í 8.-10. bekk í skautaferð og munu sömu krakkar fara á Skólahreysti á morgun en það er haldið í Smáranum í Kópavogi.
Semsagt nóg um að vera þessa dagana í skólastarfinu!

Öskudagur í Flóaskóla!
Sett inn 22. febrúar 2012

Í dag var haldið upp á öskudag í Flóaskóla. Nemendur í 1.-7. bekk ásamt elsta árganginum úr Krakkaborg skemmtu sér við að sauma öskupoka, slá köttinn úr tunnunni, dansa og sprella! Nemendur í unglingadeild voru í leyfi í dag þar sem þau voru með vel heppnað "Royal" kvöld að kvöldi sprengidags. Myndir frá því koma von bráðar.

Meðfylgjandi eru myndir frá þessum skemmtilega degi!

Skólahreysti 2012
sett inn 15. febrúar 2012

Picture
Nú er búið að velja í lið í Skólahreysti 2012.
Eftirfarandi nemendur keppa fyrir hönd Flóaskóla:

Armbeygjur/hreystigreip: Dagmar Öder Einarsdóttir, 9. bekk
Upphífingar/dýfur: Jón Þór Pálsson, 9. bekk
Hraðabraut stelpur: Hjördís Björg Viðjudóttir, 10. bekk
Hraðabraut strákar: Arnar Einarsson, 10. bekk
Varamaður stelpur: Helga Margrét Höskuldsdóttir, 9. bekk
Varamaður strákar: Ægir Atlason, 8. bekk

Krakkarnir mæta nú í aukatíma til að æfa sig fyrir keppnina en það er Hulda Kristjánsdóttir sem leiðbeinir þeim og fylgir þeim á keppnina. Í aukatímunum eru þau að prufa æfingar svipaðar og eru í keppninni, gera þol og þrekæfingar og svo verður videotími þar sem þau horfa á myndbönd frá fyrri keppnum.
Nemendur í 8. - 10. bekk munu fara með á keppnina sem stuðningsmenn en keppnin fer fram í Smáranum í Kópavogi fimmtudaginn 1. mars kl.13:00. Foreldrar eru einnig velkomnir!
Liturinn okkar í ár er svartur og munu því keppendur okkar og stuðningsmenn klæðast svörtu og mynda þannig flotta liðsheild.


Olweus: Niðurstöður úr nemendakönnun
sett inn 13. febrúar 2012

Picture
Fimmtudaginn 9. febrúar voru niðurstöður úr nemendakönnun Olweusar kynntar fyrir foreldrum. Smellið HÉR til að kynna ykkur niðurstöðurnar. Þessi mál snerta okkur öll og bestur árangur næst ef heimili og skóli standa saman í vinnu gegn einelti. Tökum höndum saman gegn einelti!


Kynning á ML og FSu - miðvikudagskvöldið 15. febrúar kl. 20:00 í Flóaskóla!
sett inn 13. febrúar 2012

Miðvikudagskvöld kl. 20:00 býður Flóaskóli nemendum í 10. bekk og foreldrum þeirra á kynningu á tveimur framhaldsskólum, FSu og Menntaskólanum að Laugarvatni. Námsráðgjafar beggja skóla koma á fundinn og kynna námsbrautir, anna- og áfangakerfi og bekkjarkerfi.

Þetta er tilvalið tækifæri til að kynnast skólunum tveimur nánar og spyrja námsráðgjafana spurninga.

Nemendur og foreldrar - mætið saman og kynnið ykkur skólana! Fundurinn er á miðvikudag, 15. feb, kl. 20 í Flóaskóla.
Picture
Picture

PISA könnun í 10. bekk
sett inn 10. febrúar 2012

Ísland er ein þátttökuþjóða í umfangsmikilli alþjóðlegri rannsókn sem fer fram um þessar mundir á færni 15 ára nemenda í lestri, náttúrufræði og stærðfræði. Rannsóknin er á vegum OECD (Efnahags- og framfarastofnunarinnar) og nefnist PISA (Programme for International Student Assessment). Lesa meira.... 
 

Matseðill febrúar-mars
sett inn 10. febrúar 2012

HÉR má nálgast nýjan matseðil fyrir tímabilið 13. febrúar - 23. mars.

Fjáröflun í 9. bekk
sett inn 3. febrúar 2012

Picture
Nú eru nemendur í 9. bekk að hefja fjáröflun fyrir fyrirhugaða útskriftarferð vorið 2013. Á námsmatsdegi buðu níundubekkingar upp á bílaþrif á planinu við skólann. Fjölmargir nýttu sér að láta þrífa bílinn að utan sem innan á meðan setið var í viðtali. Meðfylgjandi myndir voru teknar við þrifin og eins og sjá má gátu foreldrar nýtt tímann til ýmissa hluta á meðan beðið var eftir bílnum :-)


Flóaskólaþing í 8.-10. bekk
sett inn 3. febrúar 2012

Picture
Þriðjudaginn 31. janúar héldu nemendur í 8.-10. bekk Flóaskólaþing. Þar var nemendum skipt upp í 8 hópa og áttu hópanir að ræða um ákveðin málefni s.s. framkomu, umgengni, móral, aðstöðu og fleira. Að lokinni hópavinnu kynntu nemendur svo niðurstöður fyrir hinum.
Flott vinna hjá krökkunum!


Umhverfis- og starfsfræðsla í 8. bekk
sett inn 3. febrúar 2012

Miðvikudaginn 25. janúar fengu nemendur í 8. bekk hana Kolbrúnu Júlíusdóttur í heimsókn til sín til að sýna þeim leikhúsförðun. Meðfylgjandi myndir tala sínu máli!

Nýtt fréttabréf!
sett inn 27. janúar 2012


HÉR má nálgast janúarútgáfu fréttabréfs Flóaskóla.

Þorrablót!
Sett inn föstudaginn 20. janúar 2012

Í dag héldu nemendur og starfsfólk Flóaskóla upp á þorrablót í Þjórsárveri. Matráðskonur töfruðu fram dýrindis þorramat sem allir smökkuðu á. Nemendur í 5. bekk voru með flott atriði í upphafi þorrablóts en þau höfðu samið ljóð sem þau lásu upp. Einnig sungu allir Þorraþrælinn undir dyggri stjórn Kolbrúnar tónmenntarkennara.

Gleðilegt ár
Sett inn 4. janúar 2012

Flóaskóli hófst aftur eftir jólaleyfi í dag, miðvikudaginn 4. janúar og var gaman að sjá nemendur aftur eftir gott frí.
Skólastarfið hefst strax af fullum krafti og í lok janúar eru námsmatsdagar í skólanum og er þeim fylgt eftir með foreldraviðtölum í byrjun febrúar.

Með ósk um gott samstarf á nýju ári!
Hulda Kristjánsdóttir, deildarstjóri.

Kæru nemendur og foreldrar!
Sett inn 16. desember 2011

Picture
Starfsfólk Flóaskóla óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. 
Þökkum gott samstarf á árinu sem er að líða.

Síðustu dagar fyrir jól
Sett inn 13. des. 2011

Þessa dagana eru nemendur í óðaönn að undirbúa jólin í skólanum með óhefðbundnum kennslustunum inn á milli venjulegra. Nemendur í 1.-7. bekk eru í jólahringekju þar sem þau fá að gera hin ýmsu verkefni. Nemendur í unglingadeild gera piparkökuhús og laufabrauð ásamt ýmiskonar föndri :-)

Miðvikudaginn 14. desember kl. 13:00 er jólaskemmtun nemenda í 1.-7. bekk í Þjórsáveri. Allir bekkir hafa æft atriði sem flutt verður og vonumst við eftir að sjá sem flesta gesti. Að lokinni jólaskemmtun í Þjórsárveri verður sýning á munum nemenda inni í skóla. Nemendur eru beðnir um að taka sína muni með heim að sýningu lokinni. Enginn heimkeyrsla skólabíla er hjá 1.-7. bekk þar sem nemendur fara heim með foreldrum. Nemendur í 8.-10. bekk fara heim með skólabílum kl. 12:35 þennan dag.

Á fimmtudegi 15. desember mæta allir nemendur í skólann að morgni og fara heim kl. 13:55 líkt og venjulega. Um kvöldið kl. 20:00 halda nemendur í 8.-10. bekk jólaskemmtun í Þjórsárveri. Þar verður ýmislegt skemmtilegt í gangi s.s uppistand, leikrit og ljúffengar kræsingar svo eitthvað sé nefnt. Hlökkum til að sjá sem flesta gesti.

Föstudagurinn 16. desember er hefðbundinn hjá 1.-7. bekk (1.-5. bekkur fara í sund og 6.-7. bekkur í íþróttir). Nemendur í 8.-10. bekk mæta ekki í skólann þennan dag.

Mánudaginn 19. desember mæta nemendur í skólann að morgni og halda stofujól ásamt sínum bekkjarkennara. Þá verður róleg og þægileg stund þar sem nemendur fá mandarínur, smákökur og kakó, lesa jólakortin sín og eru með pakkaleik. Umsjónarkennarar hafa sent foreldrum póst þar sem þetta er útlistað nánar. Kl. 11:00 er hátíðarmatur í Þjórsárveri fyrir alla nemendur. Heimkeyrsla er svo að loknum mat kl. 11:45.
Athugið að skólavistun er ekki opin þennan dag.

Kristín skólastjóri er í leyfi dagana 14.-19. desember og 3.-5. janúar. Hulda deildarstjóri er staðgengill skólastjóra. Vinsamlegast hafið samband við hana ef þörf krefur: 866-3245 / hulda@floaskoli.is.

Kennsla hefst að loknu jólafríi 4. janúar kl. 8:10.

 

Fréttabréf nóvember-desember
Sett inn 5. desember 2011

Nýtt fréttabréf fyrir nóvember-desember má nálgast undir liðnum "skólinn" - "fréttabréf".

Menntaverðlaun Suðurlands
Sett inn 29. nóv. 2011

Picture
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga veita árlega verðlaun  fyrir framúrskarandi framlag á sviði menntunar á Suðurlandi sem um leið  er  hvatning til frekari dáða. Verðlaunin verða veitt í fjórða sinn nú í vetur.  Allir þeir sem koma að skólastarfi með einhverjum hætti geta fengið verðlaunin; grunnskólar, leikskólar, framhaldsskólar, símenntunarmiðstöðvar, háskólastofnanir,  kennarar, einstaklingar eða hópar, skólaskrifstofur, sveitarfélög/skólanefndir, foreldrafélög  o.fl.

Veitt verða peningaverðlaun sem nýtt verði til áframhaldandi menntunarstarfs.  Jafnframt fylgir  verðlaununum  formleg viðurkenning.  Verðlaunin verða afhent við formlega athöfn í tengslum við hátíðarfund  Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands  í janúar nk.

Hér með er óskað eftir tilnefningum  til verðlaunanna. Rétt til að tilnefna til verðlaunanna hafa  allir þeir sem tengjast skóla-  og menntunarstarfi með einhverjum hætti, sveitarfélög, skólanefndir,  foreldrar, kennarar og starfsfólk skóla og annað áhugafólk um menntun og skólastarf.  Tilnefningum skal fylgja ítarlegur rökstuðningur.  Menntamálanefnd SASS velur úr tilnefningum og veitir verðlaunin.  Tilnefningar skulu hafa borist  til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Austurvegi 56 Selfossi, eigi síðar en 20. desember  nk.

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga

Kveikt á jólatré Flóaskóla
Sett inn 29. nóvember 2011

Picture
Í dag kveiktum við á jólatré Flóaskóla í morgunmyrkrinu og miklu frosti! Við sungum 2 jólalög og það var svo Jónatan Mikael í 5. bekk sem fékk þann heiður þetta árið að tendra ljósin á trénu. Fallega jólatréð fengum við að gjöf frá Skógræktarfélagi Villingaholtshrepps og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Kveðja, nemendur og starfsfólk Flóaskóla

Dagur íslenskrar tungu
sett inn 11. nóv. 2011

Picture
Miðvikudaginn 16. nóvember verður dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur um allt land.
Dagur íslenskrar tungu var fyrst haldinn hátíðlegur árið 1996. Fjölmargir aðilar lögðu hönd á plóg og efndu til viðburða af þessu tilefni. Má þar nefna fjölmiðla, skóla, stofnanir og félög. Menntamálaráðuneytið hélt hátíðarsamkomu og veitti þar í fyrsta sinn verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskunnar. Dagur íslenskrar tungu hefur síðan verið haldinn hátíðlegur með svipuðu sniði og sífellt fleiri aðilar taka virkan þátt í honum með ýmsu móti.

Í Flóaskóla höldum við að sjálfsögðu upp á daginn. Nemendur munu koma saman á sal í Þjórsárveri
kl. 10:30 og allir bekkir flytja stutt atriði í tilefni dagsins og þar á meðal flytur 2.-5. bekkur tónlistaratriði sem flutt var í Hörpunni 28. október. Foreldrar/forráðamenn velkomnir.


Myndir af danssýningunni þann 10. nóvember eru undir "myndir" hér til hliðar


DANSSÝNING!
Sett inn 9. nóv. 2011

Danssýning fyrir foreldra nemenda í 1.-7. bekk verður fimmtudaginn 10. nóvember í Þjórsárveri kl. 12:30-13:15. Hlökkum til að sjá ykkur!
-Starfsfólk Flóaskóla og Dansskóla Jóns Péturs og Köru.

Dagur gegn einelti
Sett inn 8. nóv. 2011

Picture
Í dag héldum við upp á Dag gegn einelti í skólanum. 
Dagurinn er tileinkaður þessu málefni á landsvísu þar sem undirritaður var þjóðarsáttmáli um jákvæð samskipti.

Einelti spyr ekki um aldur, þjóðfélagshópa eða kyn og það þrífst einfaldlega allsstaðar þar sem það er látið viðgangast. Ábyrgð okkar allra er því mikil og það er í okkar höndum að vinna bug á þessu þjóðfélagsmeini. Það er ekki flókið ef allir taka höndum saman og sannmælast um ákveðna sátt , þjóðarsáttmála um jákvæð samskipti.

Í tilefni af baráttudegi gegn einelti þann 8. nóvember var opnuð heimasíðan www.gegneinelti.is og þar gefst fólki kostur á að undirrita eftirfarandi sáttmála:
 
Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti
-
Við undirrituð skuldbindum okkur til þess að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar.
- Við munum standa vörð um rétt fólks til þess að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt.
- Við munum sérstaklega gæta réttar barna og ungmenna sem og allra hópa sem eiga sér hvorki málsvara né sterka rödd.
- Við munum öll, hvert á okkar sviði, skuldbinda okkur til að hafa áhrif til góðs á nánasta umhverfi okkar.
- Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er.

Nemendur Flóaskóla unnu allir að gerð sáttmála hér í skólanum og undirrituðu hann með því að setja handafar og nafn sitt á veggspjöld. Nemendur unnu í átta aldursblönduðum hópum. Veggspjöldin hanga nú víða um skólann og minna okkur á að við höfum skrifaðu undir sáttmála gegn einelti.

Hvetjum alla til að skoða heimasíðuna: www.gegneinelti.is og skrifa þar undir þjóðarsáttmála gegn einelti!


Flottur árangur í samræmdum könnunarprófum

Sett inn 7. nóv. 2011

Nú þegar 10. bekk er kennt við Flóaskóla í fyrsta sinn koma niðurstöður samræmdra prófa sérlega vel út í þeim árgangi.  Miðað við samanburðartölur á milli sveitarfélaga kemur Flóahreppur út með hæstu einkunn í íslensku og stærðfræði í 10. bekk og næsthæstu einkunn í ensku.  Tekið skal fram að skólar með færri nemendur en 11 í árgangi eru ekki teknir með í samanburðartölur.  Vegna fámennis í 4. bekk og 7. bekk í Flóaskóla komast þeir bekkir ekki inn í samanburðinn en þess ber þó að geta að meðaltalseinkunnir í íslensku og stæðfræði í 7. bekk eru töluvert mikið yfir landsmeðaltali.  Í 4. bekk er íslenskueinkunn við meðaltal yfir landið en í stærðfræði er okkar meðaltalseinkunn undir landsmeðaltali.    Skólastarf er aldrei hægt að meta út frá einum þætti.  Í Flóaskóla eru nemendur sem hafa mikinn styrk á mismunandi sviðum.  List- og verkgreinum hefur verið gert hátt undir höfði og margir sterkir íþróttamenn stunda nám við skólann.  Enn aðrir nemendur hafa mikla og góða félagsfærni, eru góðir í samstarfi og geta sýnt samkennd, vináttu og virðingu.   Við erum ákaflega stolt af útkomu samræmdra prófa í skólanum okkar og ekki síður stolt af þróun skólans sl. ár og þeim styrk sem nemendur okkar sýna á fjölbreytilegan hátt. -

Skólastjóri.

Dans, dans, dans.....
Sett inn 3. nóv. 2011

Picture
Nemendur Flóaskóla eru nú langt komnir á dansnámskeiði í skólanum. Það er dansskóli Jóns Péturs og Köru sem sér um námskeiðið. Nemendur læra hina ýmsu dansa og ætla nemendur í 1.-7. bekk að enda námskeiðið á danssýningu fyrir fimmtudaginn 10. nóvember kl. 12:30-13:15.



Rafræn foreldrakönnun

Sett inn 3. nóv. 2011

Dagana 14.-21. október var lögð fyrir rafræn könnun á meðal foreldra. Spurt var um ýmis atriði er varða upphaf skólaárins 2011-2012. 47 heimili svöruðu könnuninni en nemendur koma frá 58 heimilum. Svarhlufall var því 81%. Helstu niðurstöður eru þær að foreldrar/forráðamenn eru almennt ánægðir með að föstudagur fyrir réttir sé frídagur. Einnig virðast skólakynningarnar í september hafa hentað flestum vel. Meirihluta finnst í lagi að gefa fréttabréfið út á rafrænu formi en þó er nokkuð stór hluti sem vill það ekki eða 40,4%. Fáir nýta sér heimasíðuna til að nálgast upplýsingar frá skólanum.
Fjölmargir nýttu sér dálk í könnuninni til að skrifa sérstakar athugasemdir og var gaman að sjá að fólk virðist vera almennt ánægt með skólastarfið.
Það er mikilvægur hluti af öllu skólastarfi að fá viðhorf og skoðanir þeirra sem að starfinu standa. Foreldrar eru hvattir til að koma skoðunum og hugleiðingum sínum á framfæri við skólastjórnendur eða umsjónarkennara.
Bestu kveðjur frá Flóaskóla!

Kennaranemar frá Háskólanum á Akureyri

Sett inn 3. nóv. 2011
Þessa dagana eru 4 kennaranemar í Flóaskóla sem koma frá Háskólanum á Akureyri.

Nemendur í 2.-5. bekk koma fram í Hörpu!

Picture
Í tilefni af 60 ára afmæli Tónmennta-kennarafélags Íslands verða haldnir tónleikar í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu í Reykjavík föstudaginn 28. október.  Kolbrún tónmenntakennari fer á tónleikana með hóp nemenda í 2.-5. bekk sem munu flytja lag úr Kardimommubænum.  Krakkarnir munu syngja og spila á hin ýmsu hljóðfæri. Um 500 manns komast í sæti og þurfa þeir sem vilja fara með að hafa hraðar hendur og láta Kolbrúnu vita ef þeir vilja koma með, kolbrun@floaskoli.is eða skrifstofa skólans 486-3460.
Farið verður með rútu frá Flóaskóla kl. 14 en tónleikarnir standa frá kl. 16-18.



Haustþing KS - skóli lokaður á föstudag

Heimkeyrsla frá skóla verður kl. 12:35 á morgun, fimmtudaginn 6. október vegna haustþings Kennarafélags Suðurlands.  Á föstudag er starfsdagur kennara og skólinn því lokaður. 

Þeir sem eiga börn skráð í skólavistun:  skólavistun er opin á fimmtudeginum frá kl. 12:35-16:30 fyrir þau börn sem eru skráð á fimmtudögum.  Vinsamlegast sendið skilaboð í skólann ef skráð börn eiga EKKI að fara í vistunina.

Íþróttir - INNI  

Picture
Íþróttir hjá öllum bekkjum færast nú inn. Nemendur þurfa að vera með íþróttafatnað þá daga sem íþróttir eru. Nemendur í 1.-5. bekk og stúlkur í 8.-9. bekk eru í íþróttum í Þjórsárveri en 6.-7. bekkur, drengir í 8.-9. bekk og 10. bekkur eru í Þingborg.

Fréttabréf október

Fréttabréf októbermánaðar hefur nú verið sent heim með nemendum og er einnig aðgengilegt hér á heimasíðunni undir: skólar - fréttabréf

Vinadagur

Picture
Vinir í 5. bekk og 10. bekk
Mánudaginn 26. september var fyrsti formlegi vinadagurinn haldinn á þessu skólaári.  Þá komu saman vinabekkir og áttu nemendur saman skemmtilega stund. 


Vinabekkir eru:

1. bekkur og 6.-7. bekkur

2.-3. bekkur og 8. bekkur

4. bekkur og 9. bekkur

5. bekkur og 10. bekkur. 

Markmiðið með vinabekkjunum er að efla tengsl á milli yngri og eldri nemenda, auka samkennd og samstarf og ýta undir ábyrgð eldri nemenda í samskiptum við þá yngri. 

Picture
Vinir í 2.-3. bekk og 8. bekk


Skólakynningar í Flóaskóla

Kæru foreldrar nemenda í Flóaskóla.

Skólakynningar verða fyrir foreldra í skólanum sem hér segir:

mánudaginn 26. september kl. 8:10-9:30 fyrir 1.-5. bekk.
miðvikudaginn 28. september kl. 8:10-9:30 fyrir 6.-10. bekk.

Kynningarnar hefjast með stuttu spjalli við skólastjóra, síðan fara foreldrar í kennslustofur barna sinna þar sem umsjónarkennarar og nemendur sjá sameiginlega um kynningu á námsefni, verkefnum og öðru starfi í bekkjunum. 

Vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Nemendaráð Flóaskóla

Picture
Nýkjörið nemendaráð Flóaskóla er skipað þeim Þorgils Kára Sigurðssyni 8. bekk, Helgu Margréti Höskuldsdóttur 9. bekk, Margrét Helgu Steindórsdóttur 10. bekk og Halldóri Bjarnasyni 10. bekk.  Tengiliður ráðsins við skólann er Sigrún Árnadóttir, umsjónarkennari í 8. og 10. bekk.



Lús

Flóaskóla hefur borist tilkynning um lús.
Hér má sjá ráðleggingar til foreldra um hvað best er að gera þegar lús kemur upp.

Endilega fylgist vel með og látið vita ef upp koma fleiri tilfelli - það er samvinnuverkefni okkar allra að koma í veg fyrir að þessi vágestur haldi áfram að angra okkur.

Fjölbreytt tónlistarnám í Flóaskóla

Picture
Það er sérlega ánægjulegt að sjá hve vel Flóahreppur hefur stutt við tónlistarnám í héraði í gegnum árin. Nemendur læra á mörg mismunandi hljóðfæri og sækja kennslu ýmist á Selfoss eða í Flóaskóla. Fjölbreytni í námsvali í Flóaskóla hefur aukist ár frá ári og er núna kennt á básúnu, klarínettu, blokkflautu, gítar, fiðlu og píanó á vegum Tónlistarskólans, auk þess sem nemendur í 2. bekk fá tónlistarforskóla sér að kostnaðarlausu. Í vetur býðst að auki kennsla á þverflautu í Flóaskóla.

Örfáir tímar eru enn lausir í Flóahreppi og geta þeir sem áhuga hafa sótt um nám á píanó eða fiðlu hjá Jane Ade Sutarjo, þverflautu hjá Kolbrúnu Berglindi Grétarsdóttur og málmblásturshljóðfæri hjá Ian Wilkinson. Kennsla fer fram í Flóaskóla.

Umsóknir má nálgast á heimasíðu Tónlistarskólans,
www.tonar.is – Umsókn, og nánari upplýsingar fást í síma skólans 482 1717. Umsóknarfrestur er til 25. september.

Skólasetning Flóaskóla

Skólasetning Flóaskóla verður miðvikudaginn 24. ágúst kl. 13:00.Nemendur og aðstandendur koma saman í Þjórsárveri þar sem skólastjóri setur skólann og að því loknu fara nemendur og foreldrar ásamt umsjónarkennurum yfir í Flóaskóla.

Stundatöflur nemenda

Picture
Nú eru stundatöflur nemenda aðgengilegar á heimasíðunni undir flipanum nemendur. Þar er smellt á bekkinn og þá koma upplýsingar um umsjónarkennara, nemendur í bekknum og stundatafla. Einnig er hægt að nálgst stundatöflur inni á mentor.is.
Foreldrar barna sem eru að hefja skólagöngu í 1. bekk sem og nýjir nemendur við Flóaskóla fá sent aðgangsorð inn á Mentor á næstu dögum.

Innkaup á námsgögnum skólaárið 2011-2012

Eins og undanfarin tvö skólaár ætlar Flóaskóli að bjóða upp á  innkaup námsgagna fyrir nemendur gegn vægu gjaldi sem greiðist í upphafi skólaárs. Í því felst að skólinn kaupir skriffæri, stílabækur og annað sem nemendur þurfa að nota við vinnu sína í skólanum. Foreldrar/forráðamenn hafa almennt verið ánægðir með þetta fyrirkomulag en viðhorfskönnun frá því s.l. vor sýnir að tæplega 92% foreldra/forráðamanna eru ánægðir með að skólinn sjái um innkaupin.

Rétt er að benda á að nemendur nota námsgögnin í skólanum og geyma þau þar en þufa að eiga viðeigandi skriffæri og annað heima, sem nota þarf við heimanám. Þess er krafist að umgengni um námsgögn í skóla sé góð og að ávallt sé farið vel með þau gögn sem verið er að nota.

Ef þið hafið aðrar óskir um þetta fyrirkomulag þ.e. óskið eftir að sjá sjálf um innkaup námsgagna hjá ykkar barni þá bið ég ykkur um að hafa samband við undirritaða í síma eða tölvupósti innan 7 daga, eða fyrir 9. ágúst. Ef ekki berast athugasemdir frá ykkur verður litið svo á að þið felið skólanum að annast innkaupin.

Með kveðju

Hulda Kristjánsdóttir
deildarstjóri í Flóaskóla
sími: 486-3460/866-3245
tölvupóstur: hulda@floaskoli.is

Niðurstöður úr eineltiskönnun

Fimmtudaginn 12. maí var haldinn kynningarfundur vegna eineltiskönnunar Olweusar. Bréf þar sem niðurstöðurnar eru kynntar verður sent heim með öllum nemendum. Hér má einnig nálgast niðurstöðurnar.
Smellið hér til að sækja niðurstöður könnunar.
Create a free website with Weebly